Sumarplanið hjá Jose Mourinho: Sex út og fimm inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2018 16:30 Jose Mourinho. Vísir/Getty
Það verða hreinsanir á Old Trafford í sumar samkvæmt fréttum í enskum blöðunum og Manchester Evening News telur sig vera komið með sumarplanið hjá knattspyrnustjóranum Jose Mourinho. Jose Mourinho ætlar samkvæmt heimildum blaðsins að losa sig við sex leikmenn úr leikmannahópnum í sumar en staðinn mun hann styrkja liðið með fimm nýjum leikmönnum. Leikmennirnir sem United er á eftir eru vinstri bakvörður í staðinn fyrir Luke Shaw, hægri bakvörður, miðvörður og svo tveir miðjumenn í staðinn fyrir þá Michael Carrick og Marouane Fellaini. Manchester Evening News segir að Manchester United sé á eftir þeim Jorginho, miðjumanni frá Napoli og brasilíska landsliðsmanninum Fred hjá Shakhtar Donetsk, til að fylla í skörð þeirra Carrick and Fellaini. Samningur Fred rennur ekki út fyrr en 2023 en samningur Jorginho rennur út 2020. Mourinho hefur áhuga á því að bjóða í Toby Alderweireld, miðvörð Tottenham og þá er United einnig áhugasamt um vinstri bakverðina Alex Sandro hjá Juventus, Danny Rose hjá Tottenham og unglinginn Tierney hjá Celtic. Það hefur einnig verið orðrómur um að United hafi forvitnast um Hector Bellerin, bakvörð Arsenal. Spánverjinn yrði þá framtíðar hægri bakvörður liðsins og myndi á endanum leysa af Antonio Valencia sem er orðinn 33 ára. Jose Mourinho hefur þegar eytt stórum upphæðum í leikmenn eins og Paul Pogba og Romelu Lukaku en þarf að styrkja liðið enn frekar í sumar til að ná í skottið á nágrönnunum í Manchester City sem stungu alla af í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira