Markalaust jafntefli í Watford Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 21. apríl 2018 16:00 Hodgson finnur lyktina af öruggu úrvalsdeildarsæti, en er ekki alveg kominn í sjónmál enn. vísir/getty Watford og Crystal Palace gerðu markalaust jafntefli í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Heimamenn í Watford voru mun sterkari framan af í leiknum en Palace sótti í sig veðrið þegar leið á leikinn og komst nálægt því að skora mark þegar Luka Milivojevic skaut boltanum í tréverkið beint úr aukaspyrnu á 61. mínútu. Mikill hiti var í leiknum um miðbik seinni hálfleiks en hvorugu liðinu tókst að skora og á endanum fór það þannig að bæði lið áttu góð marktækifæri og hefðu getað skorað en stig á hvort lið sanngjörn úrslit. Crystal Palace fer í 15. sætið og er sex stigum frá fallsæti þegar þrír leikir eru eftir. Watford er níu stigum frá falli og því sætið í úrvalsdeildinni svo gott sem tryggt. Enski boltinn