Búnir að fimmfalda stigafjöldann eftir að Aron Einar kom aftur inn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2018 15:30 Aron Einar Gunnarsson fagnar markinu sínu. Vísir/Getty
Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark í mjög langan tíma í ensku úrvalsdeildinni í 2-1 sigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Aron Einar sýndi og sannaði í leiknum enn á ný mikilvægi sitt fyrir Cardiff City liðið sem vann þarna sinn þriðja sigur í síðustu sex leikjum. Aron Einar missti af átta fyrstu leikjum Cardiff City vegna hnémeiðsla og velska liðið vann engan af þessum átta leikjum. Cardiff fékk í raun aðeins tvö stig í fyrstu sjö umferðunum og þau komu í markalausum jafnteflum á móti Newcastle og Huddersfield. Aron Einar kom aftur inn í liðið á móti Fulham 20. október og Cardiff vann þann leik 4-2. Aron Einar hefur nú byrjað inná í sex leikjum í röð og spilað allar 90 mínúturnar í síðustu fjórum leikjum. Cardiff City hefur alls náð í níu stig síðan að Aron Einar kom aftur inn. Velska liðið hefur því meira en fimmfaldað stigafjöldann síðan að íslenski landsliðsfyrirliðinn kom inn á völlinn aftur. Í sex leikjum hefur liðið farið úr tveimur stigum og upp í ellefu stig. Án Arons Einars var Cardiff með 20. og lélegasta árangurinn í deildinni en liðið hefur náð í ellefta besta árangurinn í deildinni síðan að Aron kom inn.Aron Einar Gunnarsson skorar hér markið sitt.Vísir/GettyCardiff City án Aron Einars í vetur:Fyrsta til áttunda umferð: 2 stig í 8 leikjum (0 sigurleikir - 2 jafntefli - 6 tapleikir) 8 prósent stiga í húsi Sæti 1 til 8. umferð: 20. sæti af 20 liðumCardiff City með Aron Einar í vetur:Níunda til fjórtánda umferð: 9 stig í 6 leikjum (3 sigurleikir - 0 jafntefli - 3 tapleikir) 50 prósent stiga í húsi Sæti 9. til 14. umferð: 11. sæti af 20 liðum
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira