Innlent

Harður árekstur á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar

Atli Ísleifsson skrifar
Áreksturinn varð um klukkan 23 í kvöld.
Áreksturinn varð um klukkan 23 í kvöld. Vísir/Ívar Guðmundsson
Harður árekstur varð þegar tveir bílar skullu saman á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan 23 í í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var einn fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka.

Slökkvilið sendi tvo sjúkrabíla og einn dælubíl á vettvang. Ekki er nánar vitað um tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×