Chelsea „loksins“ búið að reka Antonio Conte Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2018 14:22 Antonio Conte gerði Chelsea að enskum bikarmeisturum í vor. Vísir/Getty
Antonio Conte er ekki lengur knattspyrnustjóri Chelsea en verst geymda leyndarmál evrópska fótboltans hefur nú verið staðfest í ítölskum og enskum miðlum. Roman Abramovich, eigandi Chelsea, lét loksins verða að því að reka knattspyrnustjórann sinn en það var löngu orðið ljóst að Antonio Conte myndi ekki stýra bikarmeisturnum á komandi leiktíð.Chelsea sack Antonio Conte paving the way for Maurizio Sarri's arrival | @Matt_Law_DThttps://t.co/QTSvS7GRQ9pic.twitter.com/OtcnOZCyhi — Telegraph Football (@TeleFootball) July 12, 2018 Maurizio Sarri er laus allra mála frá Napoli og er því tilbúinn að setjast í stjórastólinn á Stamford Bridge. Abramovich beið samkvæmt heimildum Telegraph svona lengi til að sjá hvort að Antonio Conte fengi annað gott starf og Chelsea gæti þá sloppið við að borga upp lokaárið af samningi Ítalans. Antonio Conte var því byrjaður að stýra liði Chelsea á undirbúningstímabilinu sem mörgum þótti ansi hjákátlegt. Antonio Conte stýrði Chelsea í tvö tímabil og liðið vann stóran titil á þeim báðum. Chelsea liðið varð enskur meistari á fyrsta tímabili hans með liðið 2016-17 og vann síðan enska bikarinn í vor. Chelsea endaði hinsvegar aðeins í 5. sæti í ensku úrvalsdeildinni og missti af sæti í Meistraadeildinni 2018-19. Chelsea vann 69 af 106 leikjum sínum undir stjórn Antonio Conte, 65 prósent, og tapaði aðeins 20 leikjum. Conte hefur unnið stóran titil á síðustu fimm tímabilum hans sem þjálfari félagsliðs en Jiventus vann ítalska meistaratitilinn þrjú síðustu tímabilum Conte eða 2011–12, 2012–13 og 2013–14.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira