Núlltímasamningar afturför í kjarabaráttu launafólks Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar 11. júlí 2018 20:49 Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands, hefur áhyggjur af svokölluðum núlltímasamningum. Vísir/GVA
Atvinnurekendur hér á landi eru byrjaðir að bjóða starfsfólki upp á svokallaða núlltímasamninga sem þykja draga úr réttindum ungs fólks á vinnumarkaði. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins lýsir yfir áhyggjum af þessari þróun og segir þetta vera afturför um hundrað ár í kjarabaráttu launafólks. Ungt fólk er í miklu mæli ráðið inn í hlutastörf þar sem að vinnutíminn byggist á að hringt er í þau með skömmum fyrirvara í stað að þeim sé boðið fastar vaktir. Þetta er skref aftur á bak í kjarabaráttu launafólks. „Í rauninni er þetta afturhvarf um 100 ár til dagvinnufólks sem fór niður á eyrina til að athuga hvort það væri vinnu að fá í dag. Þetta er gríðarlega hættuleg þróun. Við höfum séð í öðrum löndum, þar sem þetta er kallað núlltímasamningar, að þú ert ekki með skilgreint starfshlutfall heldur færð bara að vita að morgni til hvort þú ert að vinna þann daginn. Það þýðir það að fólk getur ekki skipulagt framtíðina, það getur ekki fengið leigusamning ef það er með óreglulegar tekjur, getur ekki keypt sér íbúð eða skuldbundið sig,“ segir Drífa Snædal, framkvæmdastjóri SGS. Samkvæmt vinnumarkaðsskýrslu ASÍ sem kom út fyrr á árinu er ungt fólk hópurinn sem hvað mest er brotið á og það reynist þeim erfiðara að sækja grundvallarréttindi sín. Hluti af vandanum er þekkingarleysi atvinnurekenda. „Bæði nýta atvinnurekendur sér þekkingarleysi ungs fólks og svo er oft mikið þekkingarleysi hjá atvinnurekendum líka. Stéttarfélögin hafa svolítið verið að taka það upp á sína arma að fræða atvinnurekendur en auðvitað á það að vera skilyrði fyrir því að geta hafið atvinnurekstur að þú veist hvaða laun þú átt að greiða fyrir hvaða vinnuframlag. Það eiga samtök atvinnurekenda að sjá til þess að það sé gert. Jafnvel mætti hugsa sér að þú fengir ekki atvinnurekstur nema vera með svona grundvallaratriði á hreinu,“ segir Drífa einnig. Brot af þessu tagi rata ekki inn á borð til Samtaka atvinnulífsins. „Hér á landi eru þá almennt ekki einhverjir samningar við viðkomandi einstaklinga. Heldur fyrst og fremst að þarna eru þá starfsmenn sem að gefa kost á sér í störf t.d vegna afleysinga, veikinda eða fría. Þá er fyrst haft samband við þau þegar vantar afleysingu. Við leggjum mjög mikið upp úr því við okkar fyrirtæki að þau virði gerða kjarasamninga,“ segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs hjá Samtökum atvinnulífsins.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Erlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Innlent Fleiri fréttir Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Hamra járnið meðan það er heitt í mansalsmálum Bein útsending: Upplýsingafundur með íbúum Voga vegna jarðhræringa Nemandinn sem stakk Ingunni áfrýjar dómi Ráðþrota móðir, umtöluð rannsókn og skiltaþjófnaður Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum „Þetta má aldrei gerast aftur“ Hissa ef tillaga um stjórnarslit hefði ekki komið fram Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Sjá meira