Innlent

Telja brotið á mannréttindum mannsins

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Fjölskylda manns með margþættan fíkni- og geðvanda telur Landspítalann brjóta á  viðurkenndum mannréttindarsjónarmiðum með því að neita manninum um viðeigandi aðstoð. Maðurinn var útskrifaður af geðdeild án úrræða og fór aftur á götuna í neyslu. 

Móðir og systir handteknar á geðdeild fyrir að mótmæla útskrift

Í fréttum okkar fyrr í mánuðinum fjölluðum við um fjölskyldu manns sem á við alvarlegan fíkni- og geðvanda að stríða. Maðurinn var útskrifaður af geðdeild með skömmum fyrirvara, þrátt fyrir að vera sviptur lögræði með dómi og endaði hann í kjölfarið aftur á götunni.

Móðir og systir mannsins voru handteknar á geðdeild Landspítalans þegar þær mótmæltu útskrift hans. Maðurinn hefur reynt að leita aftur eftir viðeigandi aðstoð en var vísað frá.

Kristinn, faðir mannsins, segir að heimilið sé eins og sjúkrahús.Vísir/ Stöð 2

Vita ekki hvort þau séu þreyttari á baráttunni við sjúkdóminn eða kerfið

Fjölskyldan segist ekki vita hvort þau séu þreyttari á baráttunni við sjúkdóminn eða kerfið. En erfiðlega hefur gengið hjá þeim að fá fund með forstjóra spítalans. Fjölskyldan telur sig geta bent á allt að tíu lögbrot sem áttu sér stað við útskrift mannsins. Þrátt fyrir ítrekaða beiðni fréttastofu neitar spítalinn að tjá sig.

„Að útskrifa fólk með flókin geðræn vandamál og margar sjúkdómsgreiningar og er jafnvel þar að auki svipt sjálfræði, að útskrifa slíkt fólk á götuna aftur og aftur gengur ekki,“ segir Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir mannsins.

Fjölskyldan sér um manninn og segir faðir hans heimilið vera eins og sjúkrahús.

Kristinn vísar í Stjórnarskrána, máli sínu til stuðnings.Vísir/stöð 2

„Hann er fárveikur“

„Hann er ekki í neyslu þessa dagana en er mjög órólegur. Við skiptumst á að gæta hans, þetta tekur mjög á heilsu allra í fjölskyldunni. Þessi sjúkdómur er þannig að hann leggst á alla fjölskylduna. Móðir hans er mjög máttfarin eftir þetta allt saman,“ segir hann um ástandið.

Að mati Kristins er brot á viðurkenndum mannréttindarsjónarmiðum að útskrifa fólk á götuna og bendir hann á 76. grein stjórnarskrárinnar: 

„Öllum, sem þess þurfa, skal tryggður í lögum réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika. Hann er fárveikur. Við höfum ríkisspítala sem ræður ekki við að hjálpa ákveðnum hópi sjúklinga, þrátt fyrir að hann eigi að gera það. Bæði í stjórnarskrá og í lögum eru skýr ákvæði að fólki eins og honum ber að hjálpa,“ bendir Kristinn á.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×