Fótbolti

Rostov-múrinn heldur enn og aftur hreinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sverrir í leik með Rostov.
Sverrir í leik með Rostov. vísir/getty
Enn og aftur heldur rússneska liðið Rostov hreinu en liðið vann 1-0 sigur á Arsenal Tula í rússnesku úrvalsdeildinni í kvöld.

Eina mark leiksins skoraði Alexey Ionov á 65. mínútu en markið kom úr vítaspyrnu. Lokatölur 1-0.

Ragnar Sigurðsson og Sverrir Ingi Ingason spiluðu allan leikinn í miðri vörn Rostov en Björn Bergmann Sigurðarson spilaði fyrstu 66 minútur leiksins.

Rostov er með tólf stig í öðru sæti deildarinnar eftir fjóra sigri í fimm leikjum. Liðið hefur einungis fengið á sig eitt mark í fyrstu fimm leikjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×