Innlent

Óðinn sendur til að aðstoða bát í vanda

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óðinn er varðbátur Landhelgisgæslunnar
Óðinn er varðbátur Landhelgisgæslunnar Mynd/Landhelgisgæslan
Áhöfn varðbátsins Óðins var kölluð út á áttunda tímanum í morgun vegna báts sem varð olíulaus úti fyrir Akranesi.

Óðinn lagði af stað með olíu til bátsins frá Reykjavík skömmu síðar. Þegar bátsverjar á Óðni voru komnir á staðinn kom í ljós að stýrisbúnaður bátsins væri laskaður.

Í kjölfarið var björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Ásgrímur S. Björnsson, sent á vettvang til að taka bátinn í tog en vegna aðstæðna reyndist það ekki hægt.

Áhafnir Óðins og Ásgríms S. Björnssonar fylgdu bátnum til hafnar á Akranesi en þangað var komið klukkan 17:30. Að sögn þeirra sem að aðgerðinni komu versnaði sjólag og veður til muna eftir því sem leið á daginn en verkefnið tók um ellefu klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×