Innlent

Reyndi að kýla lögregluþjón

Samúel Karl Ólason skrifar
Í dagbók lögreglu segir að manninum hafi ekki tekist ætlunarverk sitt vegna skjótra viðbragða lögregluþjónsins.
Í dagbók lögreglu segir að manninum hafi ekki tekist ætlunarverk sitt vegna skjótra viðbragða lögregluþjónsins. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í morgun tilkynningu um mann sem hafði vaðið inn í verslun. Þar stóð hann gargandi og neitaði að yfirgefa verslunina þegar starfsfólk óskaði eftir því, samkvæmt dagbók lögreglu.

Þegar lögregluþjóna bar að garði reyndu þeir að ræða við hann. Það fór þó ekki betur en svo að hann reyndi að kýla annan lögregluþjóninn.

Í dagbók lögreglu segir að það hafi ekki tekist vegna skjótra viðbragða lögregluþjónsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×