Úlfarnir sóttu stig á Old Trafford Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. september 2018 16:00 Moutinho fagnar jöfnunarmarki sínu vísir/getty Nýliðar Wolves náðu í stig á Old Trafford þegar þeir sóttu Manchester United heim í dag. Joao Moutinho tryggði Wolves stig með marki í seinni hálfleik. Gestirnir í Wolves áttu hættulegri færi í upphafi og hefðu getað verið komnir yfir en það voru heimamenn sem tóku forystuna með marki frá Fred á 18. mínútu. Paul Pogba átti frábæra snertingu sem sendi boltann í hlaupið hjá Brasilíumanninum. Hann kláraði vel framhjá Rui Patricio í markinu og kom United yfir. Fred hefði getað tvöfaldað markafjölda sinn og United í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar hann skaut beint úr aukaspyrnu. Patricio varði meistaralega í slánna og bjargaði Wolves frá því að lenda 2-0 undir. Í seinni hálfleik byrjuðu gestirnir af krafti líkt og í þeim fyrri og í þetta skiptið uppskáru þeir. Joao Moutinho skoraði eftir sendingu frá Raul Jimenez, David de Gea átti ekki möguleika í markinu. Eftir markið tóku gestirnir yfirhöndina í leiknum en gáfu eftir þegar leið á leikinn og heimamenn sóttu á þá. Sigurmarkið kom þó ekki, 1-1 jafntefli niðurstaðan. Annars staðar í dieldinni vann Manchester City mjög öruggan 0-5 útisigur á Cardiff, Aron Einar Gunnarsson var ekki í leikmannahóp Cardiff vegna meiðsla. Sergio Aguero, Bernardo Silva, Ilkay Gundogan og Riyad Mahrez voru á skotskónum fyrir City. Leicester vann Huddersfield á heimavelli sínum og Crystal Palace og Newcastle gerðu jafntefli.Öll úrslit dagsins í ensku úrvalsdeildinni: Fulham - Watford 1-1 Burnley - Bournemouth 4-0 Cardiff - Manchester City 0-5 Crystal Palace - Newcastle 0-0 Leicester - Huddersfield 3-1 Liverpool - Southampton 3-0 Manchester United - Wolves 1-1 Brighton og Tottenham mætast kklukkan 16:30 Enski boltinn