Fótbolti

Albert spilaði allan leikinn í jafntefli

Dagur Lárusson skrifar
Albert í baráttunni í dag.
Albert í baráttunni í dag. vísir/getty
Albert Guðmundsson spilaði allan leikinn fyrir AZ Alkmaar í jafntefli liðsins gegn Zwolle í hollensku deildinni í dag.

 

Fyrir leikinn var AZ í fjórða sæti deildarinnar með fjórtán stig á meðan Zwolle var í fimmtánda sæti með sex stig.

 

Albert og félagar byrjuðu leikinn vel og náðu forystunni strax á 10. mínútu en það var Oussama Idrissi sem skoraði markið. Liðsmenn Zwolle náðu hinsvegar að jafna metin áður en flautað var til hálfleiksins en það var Vito Crooij sem skoraði markið.

 

Það var síðan Guus Til sem skoraði næsta mark leiksins en það kom á 76. mínútu og allt stefndi í sigur AZ.

 

Það var hinsvegar í uppbótartíma þar sem Zian Flemming skoraði fyrir Zwolle og jafnaði því metin og niðurstaðan því svekkjandi jafntefli fyrir Albert og félaga.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×