Lingard gæti spilað gegn Everton 26. október 2018 10:00 Lingard hefur lítið spilað fyrir United það sem af er tímabili Vísir/Getty
Jesse Lingard nálgast óðfluga endurkomu í lið Manchester United. Hann gæti fengið einhverjar mínútur með liðinu á móti Everton um helgina. Jose Mourinho ræddi við blaðamenn fyrir leik Manchester United og Everton í dag. Eins og venjan er var hann beðinn um að fara yfir stöðuna á meiðslalistanum. Lingaard er „næstum því tilbúinn,“ sagði Mourinho. „Getur hann hjálpað okkur í næsta leik? Það er spurning sem við verðum að svara á morgun.“ „Hann kom til baka eftir HM með smá meiðsli, við héldum ranglega að hann gæti náð sér í sumarfríinu. Svo héldum við áfram að hugsa ranglega að það myndi bæta ástandið ef hann færi að æfa með liðinu og vinna í því að verða betri.“ Marouane Fellaini, Alexis Sanchez og Diogo Dalot eru hins vegar allir frá. Portúgalinn var ekki sáttur með landsliðsþjálfara þessara þriggja leikmanna, en þeir skiluðu sér allir meiddir úr síðasta landsleikjahléi. „Sumir lansliðsþjálfarar eru fagmannlegir við okkur, senda leikmenn heim strax svo við getum farið að vinna með þeim. Aðrir voru það ekki, þér héldu leikmönnunum og við vissum ekkert hvað væri að þegar þeir mættu til okkar tveimur dögum fyrir leikinn gegn Chelsea.“ Nemanja Matic og Luke Shaw meiddust einnig í landsliðsverkefnum en þeir voru sendir beint heim til Manchester og eru byrjaðir að spila aftur með liðinu. Leikur Manchester United og Everton er á sunnudaginn klukkan 16:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira