Litið yfir Þjóðadeildina | Hvaða lið fara upp um deild og hvaða lið falla? Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar 17. nóvember 2018 15:32 Íslendingar féllu niður í B-deild Þjóðadeildarinnar en Belgar eiga góðan möguleika á að komast í undanúrslit Vísir/Getty
Nú styttist í annan endann á fyrstu riðlakeppni Þjóðadeildar UEFA og er því vert að sjá hver staðan er í keppninni, hvaða lið fara upp um deild og hvaða lið falla.A-deild: Líkt og alþjóð veit féllu Íslendingar úr A-deild Þjóðadeildarinnar en liðið hefur tapað báðum sínum leikjum gegn Belgíu og Sviss. Belgar eru með þriggja stiga forystu í riðli tvö og dugir jafntefli gegn Sviss til þess að komast í undanúrslit. Svisslendingar verða að vinna Belga á heimavelli á morgun til þess að komast í undanúrslitin.Hollendingar hafa komið á óvart í A-deildinni en þeir unnu heimsmeistara Frakka í gær og eiga möguleika á að vinna riðilinnVísir/GettyÍ riðli eitt varð ljóst í gær með sigri Hollands á heimsmeisturum Frakklands að fjórfaldir heimsmeistarar Þýskalands falla úr A-deildinni. Frakkar hafa lokið leik og eru í efsta sætinu eins og er. En Hollendingar geta hreppt fyrsta sætið og dugir þeim jafntefli gegn Þýskalandi á mánudag. Yrði það óvænt í ljósi þess að Hollendingar hafa verið í lægð undanfarin ár. Þeir virðast hins vegar vera á uppleið aftur undir stjórn Ronald Koeman.Portúgalir standa vel að vígi í riðli þrjú en Pólverjar falla niður í B-deildVísir/GettyPólverjar falla niður í B-deildina og er því keppnin um sæti í undanúrslitum á milli Evrópumeistara Portúgals og Ítalíu. Liðin mætast einmitt í dag, og geta Portúgalar tryggt sæti sitt í undanúrslitum með jafntefli.England getur unnið riðilinn en einnig fallið. Úrslitin ráðast í spennandi riðli fjögur á morgunVísir/GettyGríðarleg spenna er í riðli fjögur en þar eru Spánverjar á toppnum með sex stig og hafa lokið leik. Englendingar og Króatar eru jöfn í 2.-3. sæti. England og Króatía mætast á morgun í algjörum úrslitaleik þar sem mikið er undir. Sigurliðið á Wembley á morgun fer í undanúrslitin en tapliðið fellur í B-deildina. Þetta er ekki flókið. Spánverjar eiga enn möguleika á að komast í undanúrslit en þeir þurfa að treysta á að England og Króatía geri jafntefli. Gerist það, falla Króatar í B-deildina á markatölu.Rússar standa vel að vígi í B-deildinni og þá eru Úkraínumenn komnir upp í A-deildinaVísir/GettyB-deild: Í B, C og D-deild Þjóðadeildarinnar er mikið um að keppa því eitt laust sæti á Evrópumótið 2020 er í húfi. Liðin með besta árangurinn í deildunum, af þeim liðum sem komast ekki á EM í gegnum undankeppnina mætast í umspili um laust sæti á EM. Þjóðadeildin er því gullið tækifæri, sérstaklega fyrir lið í C-deild og D-deild að komast bakdyrameginn á EM. Í fyrsta riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar er Úkraína búnir að vinna riðilinn og leika þeir því A-deild í næstu keppni. Einn leikur er eftir í riðlinum en þá mætast Tékkland og Slóvakía í úrslitaleik um hvort liðið fellur í C-deild. Markatalan er Tékkum í hag og dugir þeim því jafntefli til þess að vera áfram í B-deild. Slóvakar verða að vinna til þess að falla ekki niður í C-deild. Rússar standa vel að vígi í riðli tvö og gætu þeir komist í A-deildina í dag, án þess að spila. Tyrkir og Svíar mætast í dag og verða Svíar að vinna, en þeir sitja á botninum með eitt stig. Vinni Svíar báða sína leiki, komast þeir í A-deildina, en tapi þeir í dag, falla þeir í C-deild. Tyrkland á ekki möguleika á að komast í A-deildina.Danir unnu sér inn þátttökurétt í A-deildinni með sigri á Wales í gær. Bosnía og Hersegóvína er einnig komið í A-deildinaVísir/GettyÚrslitin eru ráðin í riðli 3 í B-deildinni. Bosnía og Hersegóvína munu leika í A-deildinni, en Norður-Írland fellur í C-deild. Austurríki verður áfram í B-deildinni. Danir komust í gærkvöldi í A-deildina með sigri á Wales en ljóst var fyrir leikinn að sigurliðið myndi vinna riðilinn. Írar falla niður í C-deild en Wales verður áfram í B-deildinni.Finnar hafa verið að spila feiknarvel og eru komnir upp í B-deildVísir/GettyC-deild: Í C-deild er einn þriggja liða riðill og þrír fjögurra liða riðlar. Því mun eitt lið í þriðja sæti falla niður í D-deild ásamt þeim þremur liðum í fjórða sæti. Ísraelar standa vel að vígi í riðli eitt en þeir geta ekki fallið úr C-deildinni. Þeir eru á toppnum með sex stig en Skotland og Albanía eru í 2. og 3. sæti með þrjú stig. Öll lið eiga enn möguleika á að komast í B-deildina en það verður erfitt fyrir Albani. Albanía og Skotland mætast í dag, og nái Skotland stigi í dag verður hreinn úrslitaleikur á þriðjudag á milli Skotlands og Ísrael um sæti í B-deild. Frændur okkar Finnar hafa staðið sig feiknarvel í riðli tvö og eru búnir að vinna hann, og leika því í B-deild í næstu keppni. Þeir eiga því góðan möguleika á að komast á EM í gegnum Þjóðadeildina, takist þeim ekki að komast þangað í gegnum undankeppnina. Grikkir geta ekki fallið og leika því í C-deildinni áfram en Eistland er fallið niður í D-deild. Ungverjar eru í þriðja sæti og gætu enn fallið niður í C-deild, en þeir standa þó vel að vígi á meðal liða í þriðja sæti C-deildarinnar.Lars Lagerbeck er í góðum séns að stýra Norðmönnum upp í B-deildinaVísir/gettyLars Lagerbeck og lærisveinar hans hjá Noregi eru í hörku séns um að komast í B-deildina en Norðmenn mæta Kýpur í lokaumferðinni á sunnudag í riðli þrjú. Búlgaría eru jafnir Norðmönnum að stigum en þeir mæta Slóveníu sem er þegar fallið. Norðmenn eiga eitt mark á Búlgaríu fyrir lokaumferðina og verða því að ná í sömu úrslit, eða betri og Búlgaría í lokaumferðinni til þess að komast í B-deildina. Kýpur stendur verst að vígi af þeim liðum sem sitja í þriðja sætinu og þurfa þeir að vinna Norðmenn til þess að falla ekki niður í C-deild. Serbía er í góðri stöðu í riðli fjögur en þeir unnu nágranna sína frá Svartfjallalandi í dag. Serbar eru því komnir með 11 stig á toppnum en geta þeir endanlega tryggt sæti sitt í B-deildinni í kvöld þegar Rúmenar mæta Litháen. Takist Rúmenía ekki að vinna eru Serbar öruggir upp í B-deildina. Nágrannalöndin Serbía og Svartfjallaland eru í mikilli baráttu í riðli fjögur um að komast í B-deildina en þau mætast einmitt í dag. Litháen eru á botninum án stiga en þeir verða að vinna báða sína leiki sem eftir eru til þess að eiga enn möguleika á að vera áfram í C-deild. Sú von er hins vegar veik. Serbía mætir Litháen og Svartfjallaland fær Rúmena í heimsókn í lokaumferðinni sem fram fer á þriðjudag.Georgíumenn eru komnir upp í C-deildVísir/GettyD-deild: Ekkert lið fellur úr D-deildinni og en sigurliðið í hverjum riðli kemst upp í C-deild. Ólíklegt er að nokkurt lið í D-deild komist á EM í gegnum undankeppnina og er þetta því risastór gluggi fyrir liðin sem vinna sína riðla til að komast á EM. Georgía er búið að vinna riðil eitt í D-deildinni en þeir eru í riðli með Kasakstan, Lettlandi og Andorra. Hvíta-Rússland stendur best að vígi í riðli tvö en þeir eru á toppnum með tveggja stiga forystu á Lúxemborg. Móldóva situr í þriðja sæti en San Marínó eru á botninum án stiga. Hvíta-Rússland mætir San Marínó í lokaumferðinni og ætti að vinna þá, og tryggja sæti sitt í C-deildinni. Enn á eftir að leika tvær umferðir í riðli þrjú en þar eru frændur okkar Færeyingar. Kósóvó eru á toppnum með átta stig en Aserbaídsjan er í öðru sæti með sex stig. Færeyjar koma þar á eftir með fjögur stig. Efstu þrjú liðin eiga möguleika á að komast í C-deildina en næst síðasta umferðin fer fram í dag. Malta er á botninum og getur ekki komist áfram. Aserbaídsjan og Færeyjar eigast við í dag á meðan Malta fær Kósóvó í heimsókn. Kósóvó getur því komist upp í C-deild í dag, vinni þeir Möltu og Færeyjar vinni Aserbaídsjan. Í riðli fjögur eiga aðeins tvö lið möguleika á að komast í C-deildina. Það eru Makedónía og Armenía. Makedóníumenn standa vel að vígi og þurfa þeir jafntefli gegn Gíbraltar í lokaumferðinni. Armenar verða að treysta á að Gíbraltar vinni Makedóníu og á sama tíma verða þeir að vinna Liechtenstein. Á mánudag verður komin heildarmynd á hvaða lið leika í hvaða deildum og verður áhugavert að sjá hvaða liðum Ísland getur mætt í B-deildinni árið 2020 þegar næsta keppni Þjóðadeildarinnar hefst.
Fótbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira