Enski boltinn

De Gea klár til ársins 2020

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
De Gea hefur verið frábær í marki United.
De Gea hefur verið frábær í marki United. vísir/getty
Man. Utd virkjaði í dag klásúlu í samningi félagsins við markvörðinn David de Gea sem gerir það að verkum að hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2020.

Núverandi samningur De Gea átti að renna út næsta sumar og félagið hefur reynt að gera nýjan langtímasamning við félagið. Þær viðræður standa enn yfir.

Framtíð De Gea hefur verið í óvissu á nánast hverju einasta ári síðustu ár. Hún hefur verið það líka síðustu vikur en bæði PSG og Juventus eru sögð hafa áhuga á honum.

Real Madrid vildi lengi fá hann í sínar raðir en þegar félagið nældi í Thibaut Courtouis frá Chelsea þá var það úr sögunni að De Gea færi þangað.

Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, segir að De Gea sé ánægður í Manchester og vilji vera þar áfram.

„Hann er besti markvörður heims og félög sem ætla að vera á toppnum vilja hafa þann besta í sínum röðum. Hann vill vera áfram og mun skrifa undir nýjan samning,“ sagði Mourinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×