Fótbolti

Kári tekinn af velli í tapi

Dagur Lárusson skrifar
vísir/getty
Kári Árnason var tekinn af velli þegar um stundarfjórðungur var eftir af leik í óvæntu tapi Genclerbirligi gegn Istanbuspor í tyrkneska boltanum í dag.

 

Kári Árnason var að vanda í byrjunarliði en hans lið sá samt sem áður sjaldan til sólar í þessum leik. Það var Imbrahim Yilmas sem kom Istanbulspor yfir rétt fyrir hálfleikinn.

 

Það var síðan Yilmas sem var aftur á ferðinni á 80. mínútu og innsiglaði hann sigur sinna manna. Kári Árnason var tekinn af velli á 78. mínútu en ekki ert vitað hvort að um meiðsli hafi verið að ræða eða ekki.

 

Eftir leikinn eru Kári og félagar þó ennþá í fyrsta sæti deildarinnar með 31 stig.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×