Huddersfield af botninum í fjórtánda sætið eftir sigur á Wolves Anton Ingi Leifsson skrifar 25. nóvember 2018 18:00 Leikmenn Huddersfield fagna. vísir/getty Huddersfield vann mikilvægan 2-0 sigur á Wolves á útivelli í dag í síðari leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Fyrsta markið kom strax á sjöttu mínútu er Ástralinn Aaron Mooy kom Huddersfield yfir en Mooy skoraði einnig síðara mark Huddersfield stundarfjórðungi fyrir leikslok. Með sigrinum fór Huddersfield úr sjö stigum í tíu stig og því eru þeir komnir upp í fjórtánda sæti deildarinnar. Rosalega mikilvægur sigur. Nýliðarnir í Wolves voru að tapa fimmta leiknum sínum á tímabilinu af þrettán leikjum en Wolves er í ellefta sæti deildarinnar með sextán stig. Enski boltinn