Arsenal komst aftur á sigurbraut Dagur Lárusson skrifar 25. nóvember 2018 15:30 Aubameyang skorar sigurmarkið. vísir/getty Arsenal komst aftur á sigurbraut í enska boltanum í dag þegar liðið bar sigurorð á Bournemouth á Vitality vellinum þar sem Aubameyang skoraði sigurmarkið. Fyrir leikinn var Arsenal í sjötta sæti deildarinnar með 24 stig á meðan Bournemouth var sæti ofar með 21 stig. Heimamenn í Bournemouth byrjuðu leikinn að miklum krafti og sóttu stíft fyrstu mínúturnar. David Brooks náði meira segja að koma boltanum í netið en dæmt var á hann rangstaða. En þegar líða fór á fyrri hálfleikinn fóru liðsmenn Arsenal að vakna og náðu þeir forystunni á 30. mínútu þegar Kolasinac gaf fyrir inná teig Bournemouth og varð Jefferson Lerma fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Allt stefndi í að Arsenal færi með forystuna í hálfleikinn en Bournemouth náði hinsvegar góðri skyndisókn á síðustu sekúndum fyrri hálfleiksins sem endaði með því að Joshua King jafnaði metin, staðan því 1-1 í hlé. Í seinni hálfleiknum réð Arsenal algjörlega ferðinni og sótti stíft en Bournemouth átti þó eina og eina skyndisókn. En það var síðan á 64. mínútu þegar Arsenal náði forystunni á nýjan leik með marki frá Aubameyang eftir undirbúning frá Kolasinac. Liðsmenn Bournemouth reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en náðu því ekki og því fyrsti deildarsigur Arsenal í fjórum leikjum staðreynd. Enski boltinn