Leikmaður Fulham semur lög fyrir Dua Lipa og Kylie Minogue 7. desember 2018 12:30 Chelcee Grimes getur skorað og spilað. vísir/getty
Chelcee Grimes er kannski ekki nafn sem að allir þekkja en það styttist líklega í að heimsbyggðin fari að taka eftir þessari ótrúlega hæfileikaríku 26 ára konu. Grimes er fótboltakona frá Liverpool sem spilaði áður með uppeldisfélaginu en er nú á mála hjá Fulham þar sem hún er stórhættuleg fyrir framan markið. Hún heldur enn þá með Liverpool og er dugleg að láta í sér heyra á Twitter þegar að lærisveinar Jürgens Klopps eru að spila. Fótbolti er stór hluti af lífi hennar. En, tónlistin er það líka. Grimes er lagahöfundur góður og hefur brunað á toppinn þar á skömmum tíma. Hún samdi þrjú lög með Dua Lipa á fyrstu breiðskífu hennar sem er sú plata sem oftast hefur verið streymt af öllum plötum eftir kvenkyns tónlistarmann í sögunni.„Þetta ár hefur verið frábært. Ég er búin að skrifa fyrir marga frábæra tónlistarmenn, verið að gefa út mína eigin tónlist og svo er ég búin að skora nokkur mörk fyrir Fulham,“ segir Grimes í viðtali við BBC. Þá hefur hún einnig samið fyrir Kylie Minogue, The Saturdays og Chris Lane auk þess sem að hún gaf út sína eigin tónlist í ár. Tónlistarmaðurinn Calvin Harris var fljótur að taka eftir Grimes og bauð henni að starfa með sér í Los Angeles. Hún þáði það boð eðlilega og hefur verið að túra bæði með honum og Dua Lipa samhliða því að reyna að sinna fótboltanum. BBC gerði skemmtilegt innslag um Chelcee Grimes sem má sjá með því að smella hér.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira