Galdraskiptingar Unai Emery Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2018 13:00 Varamennirnir Alexandre Lacazette og Aaron Ramsey fagna í gær. Vísir/Getty
Arsenal er komið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 4-2 sigur á nágrönnum sínum í Tottenham í gær. Unai Emery er á sínu fyrsta tímabili í stjórastólnum hjá Arsenal og það er óhætt að segja að þesssi 47 ára Spánverji kunni að nota varamennina sína. Enn á ný voru það varamennirnir sem gerðu útslagið í sigrinum á Spurs. Það hafa verið margar galdraskiptingar hjá Unai Emery á leiktíðinni og ólíkt Arsene Wenger þá er hann óhræddur að henda varamönnum inn á völlinn strax í hálfleik. Unai Emery sendi þá Alexandre Lacazette og Aaron Ramsey inná í hálfleik fyrir þá Alex Iwobi og Henrikh Mkhitaryan en staðan var þá 2-1 fyrir Tottenham. Aaron Ramsey lagði fyrst upp jöfnunarmark fyrir Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette kom Arsenal síðan yfir eftir aðra stoðsendingu frá Aaron Ramsey. Varamenn Arsenal hafa nú bæði skorað fleiri mörk (8) og gefið fleiri stoðsendingar (7) en varamenn allra annarra liða í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili eins og sjá má hér fyrir neðan.Most goals by substitutes in the Premier League this season: Arsenal (8) Most assists by substitutes in the Premier League this season: Arsenal (7) Unai Emery knows how to shuffle the pack. pic.twitter.com/l0MP5s7XfO — Squawka Football (@Squawka) December 2, 2018Pierre-Emerick Aubameyang var í byrjunarliðinu í gær og skoraði tvö marka Arsenal en hann er engu að síður sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk sem varamaður á tímabilinu eða fjögur. Aaron Ramsey er stoðsendingahæstur varamanna með fjórar slíkar en Chelsea-maðurinn Eden Hazard kemur næstur með þrjár. Það má sjá öll mörk Arsenal liðsins í leiknum hér fyrir neðan og þar með þessa frábæru innkomu varamannanna Alexandre Lacazette og Aaron Ramsey.
Enski boltinn Mest lesið Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira