Fótbolti

Berbatov, Brown og Baldvinsson í ævintýrum í Indlandi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dimitar Berbatov og Wes Brown fagna hér marki með Manchester United.
Dimitar Berbatov og Wes Brown fagna hér marki með Manchester United. Vísir/Getty
Dimitar Berbatov, Wes Brown og Guðjón Baldvinsson eru nú liðsfélagar hjá indverska félaginu Kerala Blasters eftir að íslenski framherjinn fór á láni til félagsins á dögunum.

Guðjón hefur komið inná sem varamaður í tveimur leikjum og Kerala Blasters hefur tryggt sér sigur í þeim báðum eftir að Garðbæingurinn kom inn á völlinn. Guðjón fiskaði mótherja útaf í fyrri leiknum og lagði upp mark í þeim síðari.

Guðjón heldur greinilega hópinn með Berbatov og Englendingunum tveimur því enski markvörðurinn Paul Rachubka var líka með í ævintýrum þeirra eins og sést á mynd sem  Dimitar Berbatov setti inn á Instagram síðu sína.







Berbatov segir þarna frá því að félaganir hafi lent í umferðateppu á hótelvagninum en kuldinn er greinilega ekki að angra þá mikið þessa dagana.

Dimitar Berbatov, Wes Brown og Paul Rachubka léku allir á sínum tíma með liði Manchester United. Rachubka lék reyndar bara einn leik í janúar 2000 en Wes Brown var hjá United í fimmtán ár (1996-2011) og Berbatov lék þar í fjögur tímabil (2008-2012).




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×