Aðeins 95 mínútur á milli marka hjá Jóni Daða Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. október 2018 12:30 Jón Daði Böðvarsson er í fínum gír á nýju tímabili. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson, framherji Reading í ensku B-deildinni í fótbolta, fer virkilega vel af stað þetta tímabilið og í raun miklu betur sjálfur heldur en liðið sem er aðeins búið að vinna tvo leiki af tíu. Jón Daði skoraði tvö mörk af miklu harðfylgi í 2-2 jafntefli gegn Brentford um helgina en hann er nú búinn að skora sex mörk í níu leikjum fyrir Reading í deildinni. Selfyssingurinn er búinn að byrja inn á sex sinnum og koma inn á sem varamaður í þrígang og spila í heildina 569 mínútur. Hann er því búinn að skora mark á 95 mínútna fresti eða næstum eitt mark að meðaltali í hverjum leik. Aðeins eru færri mínútur á milli marka hjá einum leikmanni í deildinni en það er hjá Neal Maupay, leikmanni Brentford, sem einmitt skoraði fyrra markið á móti Reading um helgina. Maupay, sem er markahæstur í deildinni með níu mörk, er að skora á 74 mínútna fresti en hann er með níu mörk á 667 mínútum spiluðum. Jón Daði skoraði sjö mörk í 33 leikjum (20 í byrjunarliði) fyrir Reading í deildinni á síðustu leiktíð og vantar nú aðeins eitt upp á til að jafna þann markafjölda eftir aðeins tíu umferðir. Íslenski landsliðsframherjinn hefur mest skorað níu mörk í deildarkeppni á einni leiktíð en það var árið 2015 þegar að hann skoraði níu mörk í 29 leikjum fyrir Viking í norsku úrvalsdeildinni. Mörkin úr leiknum á móti Brentford má svo sjá hér að neðan.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira