Aðeins Sterling og Hazard eru að spila betur en Gylfi Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. október 2018 09:49 Gylfi Þór fagnar öðru marki sínu á móti Fulham. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson er í þriðja sæti á nýjum topplista (e. Power Rankings ) ensku úrvalsdeildarinnar sem Sky Sports tekur saman eftir hverja umferð en aðeins Eden Hazard, leikmaður Chelsea, og Raheem Sterling, leikmaður Manchester City, eru að spila betur þessa dagana. Topplistinn tekur mið af 34 tölfræðiþáttum en inn í tölunum eru fimm síðustu leikir í deildinni og gilda nýjustu leikirnir hvað mest. Það hentar Gylfa ágætlega því hann fór á kostum í síðustu umferð á móti Fulham þar sem að hann skoraði tvö mörk en brenndi af vítaspyrnu. Hann er með 8,162 stig en Sterling er sá eini sem kemst yfir 9.000 stiga múrinn á listanum. Jóhann Berg Guðmundsson er líka í fínu formi með Burnley en hann lagði upp og skoraði í 2-1 sigri Burnley um síðustu helgi. Þetta var annar leikurinn í röð sem að hann kemur með beinum hætti að marki hjá Burnley-liðinu. Jóhann Berg er í 23. sæti á uppleið með 5,239 stig en hann er fyrir ofan stórstjörnur á borð við Pierre-Emerick Aubameyang, Aymeric Laporte og Liverpool-manninn Roberto Firmino. Gylfi er efstur allra í Everton-liðinu en Joe Hart er að spila betur fyrir Burnley samkvæmt tölfræðinni. Hann er með 5,898 stig.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira