Innlent

Eldur í skellinöðru í Garðabæ

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Frá vettvangi
Frá vettvangi Vísir/Vilhelm
Eldur kom upp í skellinöðru við Vífilsstaði í Garðabænum á ellefta tímanum í kvöld. Slökkviliðið á Höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um þetta rétt fyrir kl. 23. Eldsupptök eru ókunn að svo stöddu. Búið er að slökkva eldinn og slökkvistarfi á vettvangi er lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×