Rooney: Hef alltaf stefnt að því að spila í MLS Arnar Geir Halldórsson skrifar 29. júní 2018 07:30 Wayne Rooney mættur til Bandaríkjanna Heimasíða DC United
Einn sigursælasti leikmaður enska boltans undanfarinn áratug, Wayne Rooney, er genginn til liðs við DC United sem leikur í bandarísku úrvalsdeildinni. Gengið var frá samningum í gær og gerir þessi fyrrum landsliðsfyrirliði Englands þriggja og hálfs árs samning við félagið en Rooney kemur til Bandaríkjanna frá Everton. „Nú er að hefjast spennandi kafli á mínum ferli og ég er mjög spenntur fyrir því. Það hefur alltaf verið á stefnuskránni hjá mér að koma hingað til Bandaríkjanna á einhverjum tímapunkti og ég held að þetta sé rétti tíminn,“ sagði Rooney við komuna til Washington í gær. Rooney er 32 ára gamall og verður minnst sem einn af bestu leikmönnum í sögu Manchester United enda markahæsti leikmaður í sögu félagsins ásamt því að vera markahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins. Hann hefur mikla trú á framtíð DC United en félagið hefur fjórum sinnum unnið MLS deildina; síðast árið 2004. „Ég er mjög spenntur fyrir því verkefni sem er í gangi hjá DC og þeir kynntu það vel fyrir mér. Það er ástæðan fyrir því að ég valdi að koma hingað,“ DC United situr nú á botni Austurdeildarinnar og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu tólf leikjum sínum. „Já það er rétt að þetta verður krefjandi en liðið hefur spilað marga útileiki. Við eigum marga heimaleiki framundan og þurfum að bæta okkur; komast ofar í töflunni á þessu tímabili og byggja ofan á það í kjölfarið,“ segir Rooney.A true #MUFC legend.Thank you for the memories and best of luck in @MLS, @WayneRooney! pic.twitter.com/kAMgS0lUrD— Manchester United (@ManUtd) June 28, 2018
Fótbolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Birkir á leið til Vals á nýjan leik Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Gætu spilað um titilinn á sunnudegi í Víkinni Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Linda beindi Sammy Smith til Íslands: „Hugsaði mig ekki tvisvar um“ Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Stefán fær Arsenal í heimsókn Sjáðu glæsimörk táninga og Helga koma Víkingi á toppinn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Heimir „hæstánægður með FH-liðið“ eftir 3-0 tap „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Barcelona jók forskot sitt með herkjum Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm „Draumur að spila fyrir uppeldisfélagið“ Sveindís Jane og Sædís Rún í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Sjá meira