Berbatov kennir leikmönnum United að nýta styrkleika Lukaku Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. desember 2018 15:00 Dimitar Berbatov er þreyttur á þessari neikvæðni. skjáskot
Romelu Lukaku, framherji Manchester United, hefur ekki beint verið á skotskónum að undanförnu en hann er þó búinn að skora tvö mörk í síðustu þremur leikjum liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Áður en Lukaku kom boltanum í netið í 2-2 jafntefli United gegn Southampton á útivelli var hann búinn að spila sjö leiki í röð án þess að skora en vegna þess hefur Belginn verið gagnrýndur harkalega. Dimitar Berbatov, fyrrverandi framherji Manchester United, kom Lukaku til varnar í þætti á Sky Sports um síðastliðna helgi þegar að hann var spurður hversu mikilvægt markið gegn Tottenham var fyrir belgíska framherjann. „Auðvitað var þetta mikilvægt mark og vafalítið var þetta mikill léttir fyrir hann. Ég skil bara ekki hvers vegna allir einbeita sér svona mikið að því þegar að menn skora ekki í fimm, sex eða sjö leikjum í röð. Þetta er svo neikvætt. Fólk dreifir neikvæðni út um allt,“ sagði Berbatov.„Maðurinn er fullmeðvitaður um að hann er ekki að skora og fer svekktur heim eftir að skora ekki í enn einum leiknum. Hvaða áhrif haldið þið að þetta hafi á sjálfstraust hans? Það er í kjallaranum. Heldur fólk að hann vilji ekki skora? Hann vill skora í hverjum leik,“ sagði Búlgarinn. Berbatov finnst Lukaku góður leikmaður en finnst sömuleiðis að styrkleikar hans séu illa nýttir inn á vellinum. „Ég er mjög hrifinn af honum. Hann er góður á boltanum og er sterkur en liðsfélagar hans þurfa að vita hverjir styrkleikar hans eru. Fyrsta snertingin hans er kannski ekki eins góð og hjá öðrum leikmönnum liðsins. Áttið ykkur þá á því og gefið á hann sendingu sem að hann ræður við og sendingu sem lætur hann líta vel út,“ segir Berbatov. „Byggið upp sjálfstraust hans. Þetta er aðalframherji liðsins sem verður að skora mörk,“ segir Dimitar Berbatov.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira