Mounie með tvö í sigri Huddersfield Dagur Lárusson skrifar 11. febrúar 2018 14:00 Steve Mounie fagnar fyrra marki sínu. vísir/getty Steve Mounie skoraði tvö mörk í sigri Huddersfield á Bournemouth í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liðsmenn Huddersfield byrjuðu heldur betur með látum en þeir náðu forystunni strax á 7. mínútu með marki frá Alex Pritchard sem kom til liðsins frá Norwich í janúar. Það tók þó gestina ekki langan tíma að jafna metin því á 14. mínútu fékk Junior Stanislas boltann í teig Huddersfield og lagði hann boltann snyrtilega í netið framhjá Lössl. Eftir þetta mark tóku liðsmenn Huddersfield öll völdin á vellinum og sköpuðu sér mikið af færum. Á 27. mínútu skoraði síðan Steve Mounie fyrir Huddersfield og sá til þess að sitt lið færi með forystuna í leikhlé. Í seinni hálfleiknum hélt Huddersfield völdum sínum á vellinum og skoraði Steve Mounie sitt annað mark á 66. mínútu. Það var síðan í uppbótartíma þar sem Huddersfield skoraði sitt fjórða mark en það kom af vítapunktinum og þar var á ferðinni Van La Parra sem vildi ekki leyfa Steve Mounie að fara á punktinn og fullkomna þrennu sína. Lokatölur 4-1 og eftir leikinn er Huddersfield í 16. sæti með 27 stig á meðan Bournemouth er í 10. sæti með 31 stig. Enski boltinn