Jóhann Berg tryggði Burnley jafntefli gegn Man City Arnar Geir Halldórsson skrifar 3. febrúar 2018 14:15 Jóhann Berg Guðmundsson skoraði jöfnunarmark Burnley vísir/getty Topplið Man City heimsótti Turf Moor í fyrsta leik dagsins í enska boltanum og var íslenski landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson á sínum stað í byrjunarliði Burnley. Brasilíski varnarmaðurinn Danilo kom Man City yfir í fyrri hálfleik með glæsilegu skoti utan teigs sem Nick Pope réði ekki við. Þannig hélst staðan allt þar til á 83.mínútu þegar Jóhann Berg var réttur maður á réttum stað á fjærstönginni og skoraði eftir fyrirgjöf Matt Lowton. Enski landsliðsmaðurinn Kyle Walker steinsofandi í varnarleiknum og það færði Jóhann Berg sér í nyt. Burnley situr í sjöunda sæti deildarinnar með 36 stig en Man City er eftir sem áður langefst, nú með sextán stiga forystu á toppi deildarinnar. Enski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn