Þetta mun gerast á Íslandi 2018 Birgir Olgeirsson skrifar 6. janúar 2018 11:00 Það mun ýmislegt merkilegt eiga sér stað á Íslandi árið 2018. Vísir
Árið 2018 er gengið í garð og mun ansi margt eiga sér stað á því herrans ári. Þar á meðal heimsmeistaramót í knattspyrnu, Evrópumót í handbolta, Vetrarólympíuleikar, tónlistarhátíðir, listahátíðir, bæjarhátíðir og réttindahátíðir. Sveitastjórnakosningar fara fram á árinu auk þess sem Ísland fagnar 100 ára afmæli fullveldis. Þá verða ýmis ný mannvirki tekin í notkun á árinu.Hér fyrir neðan má sjá yfirferð Vísis yfir árið:JanúarÞriggja þrepa dómskerfi1. janúar breyttist dómskerfi landsins þegar Landsréttur tók til starfa. Úrlausnum héraðsdómstóla, sem eru átta, er unnt að skjóta til Landsréttar. Æðsti dómstóll ríkisins er Hæstiréttur. Þangað er unnt að skjóta úrlausnum Landsréttar að fengnu leyfi Hæstaréttar, en í flestum málum verða úrlausnir Landsréttar endanlegar. Hækkun fæðingarorlofs Fæðingarorlof var hækkað 1. janúar en það á við foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir áramót.EM í handbolta Evrópumót karla í handbolta fer fram í Króatíu dagana 12. – 28. janúar næstkomandi. Ísland leikur í A-riðli mótsins með Króatíu, Svíþjóð og Serbíu en leikið verður í Split.Upphaf þorra Þorri er fjórði mánuður vetrar og hefst í 13. viku vetrar að forníslensku tímatali. Samkvæmt því taldist veturinn hálfnaður þegar þorrinn gekk í garð. Þorrinn í ár hefst 19. janúar næstkomandi og er bóndadagur ávallt fyrsti dagur hans. Margir Íslendingar fagna þorra og stór þorrablót haldin víða um land, þar á meðal þorrablót Stjörnunnar í Garðabæjar sem er 19. janúar í ár.Kísilver PCC á Bakka gangsett Stefnt er að því að gangsetja kísilver PCC BakkaSilicon ehf. á Bakka við Húsavík í lok janúar. Áður hafði verið gert ráð fyrir því að það yrði gangsett 13. desember síðastliðinn.FebrúarVetrarólympíuleikarnirUm er að ræða 23. Vetrarólympíuleikana sem fara fram í Pyeongchang í Suður Kóreu frá 9. til 25. febrúar í ár. Íslendingar munu eiga einhverja fulltrúa þar en endanlegur listi mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir 22. janúar.Söngvakeppni Sjónvarpsins Fyrirkomulag keppninnar verður með svipuðu sniði og fyrri ár. Forkeppnin fer fram 10. og 17. febrúar í Háskólabíó þar sem þrjú lög komast áfram í úrslitin sem fara fram 3. mars í Laugardalshöll. Sigurvegarinn verður fulltrúi Íslands í Eurovision í Portúgal í maí.Bolludagur12. febrúar í ár munu Íslendingar borða rjómabollurnar en bolludagur verður mánudaginn í föstuinngangi, sjö vikum fyrir páska.Sprengidagur 13. febrúar er komið að saltkjötinu og baununum en um er að ræða þriðjudag í föstuinngangi fyrir lönguföstu.Valentínusardagur 14. febrúar fagna ástfangnir messudegi heilags Valentínusar með því að gefa gjafir á borð við blóm og konfekt.Öskudagur Fyrsti dagur lönguföstu fyrir páska verður 14. febrúar.Góa Hefst sunnudaginn 25. febrúar í ár. Um er að ræða fimmta og næstsíðasta mánuð vetrar að forníslensku tímatali. Dóa er dóttir Þorra en konudagurinn ber upp á fyrsta degi Góu.Icelandair fær nýjar þotur Flugfélagið fær þrjár nýjar Boeing 737 MAX þotur til landsins í febrúar en þær verða þó ekki teknar inn í leiðakerfið fyrr en seinna í vor. Á næsta ári fær flugfélagið sex slíkar vélar til viðbótar.Icelandair fær nýjar Boeing 737 MAX þotur í febrúar en þær verða ekki teknar í notkun fyrr en í vor.BoeingMarsSónar Tónlistarhátíðin Sónar Reykjavík fer fram dagana 16. – 17. mars í Hörpu.Fyrsti dagur dymbilviku Pálmasunnudagur er hátíðsdagur kristinna sem fellur á sunnudaginn fyrir páska og er fyrsti dagur dymbilviku. Pálmasunnudagur, sem verður 25. mars í ár, er haldinn til minningar um innreið Jesú í Jerúsalem þegar fólkið breiddi klæði sín á veginn og veifaði pálmagreinum til að fagna komu hans.Skírdagur 29. mars verður þess minnst þegar Jesú Kristur þvoði fætur lærisveinanna fyrir hina heilögu kvöldmáltíð sem er kölluð síðasta kvöldmáltíðin.Föstudagurinn langi Föstudagurinn langi verður 30. mars en þá er píslargöngu Krists minnst, krossfestingar hans og dauða.Aldrei fór ég suður Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fer fram á Ísafirði í páskavikunni, hefst á skírdegi og lýkur á laugardeginum 31. mars fyrir páskadag.Aldrei fór ég suður verður haldin á Ísafirði um páska.Ágúst G. AtlasonAprílPáskadagur Páskadag ber upp 1. apríl í ár en páskar eru haldnir fyrsta sunnudag eftir að tungl verður full næst eftir vorjafndægur.Jessie J í HörpuBreska söngkonan heldur tónleika í Hörpu á síðasta degi vetrar, 18. apríl næstkomandi.Sumardagurinn fyrsti Fyrsti dagur Hörpu, fyrsta sumarmánaðarins, verður 19. apríl.Fossavatnsgangan Um er að ræða elsta skíðamót sem er enn við lýði á Íslandi, en gangan fór fyrst fram árið 1935. Gangan fer jafnan fram á Ísafirði um mánaðamótin apríl/maí og markar lok skíðavertíðarinnar hér á landi. Gangan í ár er 28. apríl en von er á hátt í þúsund manns sem mun reyna sig við þessa krefjandi skíðagöngu.Jessie J á tónleikum í Laugardalshöll árið 2015.Vísir/DaníelMaíJohn Cleese í Hörpu Grínarinn verður með þrjár sýningar í Eldborgarsal Hörpu dagana 17., - 18. – og 19. maí.Foreigner í Laugardalshöll Tónleikarnir fara fram föstudagskvöldið 18. maí.Eurovision Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, fer fram í Lissabon í Portúgal dagan 8. – 12. maí.Uppstigningardagur Um er að ræða einn af 15 lögbundnu frídögum almanaksársins en uppstigningardagur er fimmtudagurinn fjörutíu dögum eftir páska. Uppstigningardagur er 10. maí í ár en þá er himnafarar Jesú Krists minnsts.Hvítasunna Ber upp 20. maí í ár en hvítasunnan markar lok páskatímans.Sveitarstjórnarkosningar Gengið verður að kjörkössunum 26. maí næstkomandi þar sem barist verður um forystu í sveitarstjórnum landsins.Sveitarstjórnarkosningar verða í lok maí.VísirJúníSjómannadagur er 3. júníHM í Rússlandi Heimsmeistaramótið karla í knattspyrnu hefst 14. júní með leik Rússa gegn Saudi Arabíu í Moskvu þann 14. júní næstkomandi. Ísland leikur í D-riðli og er fyrsti leikurinn gegn Argentínu þann 16. júní næstkomandi.Listahátíð í Reykjavík Listahátíð í Reykjavík fagnar 48 ára afmæli sínu í ár en hún verður haldin 1. – 17. júní. Fjöldi glæsilegra listamanna kemur fram á þessari hátíð, þar má meðal annars nefna Bill Murray sem verður með tvær skemmtanir í Hörpu.SumarsólstöðurSumarsólstöður verða 21. júní í ár en á því augnabliki snýr norðurpóll jarðar næst sólu.Secret SolsticeTónlistarhátíðin fer fram í Laugardal í Reykjavík dagana 21. – 28. júní.Secret Solstice verður á sumarsólstöðum í ár.Vísir/DaníelJúlíNý brú yfir BjarnarfjarðaráVerkið hófst síðastliðið haust og verklok áætluð í júlí.Druslugangan Mótmælaganga þar sem markmiðið er að uppræta fordóma varðandi klæðaburð og ástand þeirra sem verða fyrir kynferðisofbeldi og vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð. Fyrsta druslugangan var farin í Reykjavík 23. júlí árið 2011 og má ætla að hún verði farin í júlí í ár.Hvalfjarðargöngin Spölur ehf., félagið sem rekur Hvalfjarðargöng, ráðgerir að hætta gjaldtöku þar síðsumars og afhenda ríkinu göngin. Hvort ríkið muni síðan halda áfram gjaldtöku liggur ekki fyrir.Breikkun brúa Byggin nýrra brúa á Hólá og Stigá á Hringveginum í Öræfum. Koma í stað einbreiðra brúa. Unnið af vinnuflokki Vegagerðarinnar. Verklok áætluð í sumar.Spölur ætlar að hætta gjaldtöku og afhenda íslenska ríkinu Hvalfjarðargöng síðsumars. Það er stefna fyrirtækisins en stefna íslenska ríkisins liggur ekki fyrir varðandi áframhald á gjaldtöku.Vísir/PjeturÁgústVerslunarmannahelgin Frídagur verslunarmanna ber upp 5. ágúst í ár. Ljóst er að fjölmargir munu leggja land undir fót á hátíðir víða um land, þar á meðal þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.Fiskidagurinn mikliFjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldin hátíðleg í Dalvíkurbyggð helgina eftir verslunarmannahelgi.Gay Pride Hinsegin dagar fara fram 7. – 12. ágúst þar sem minnt er á réttindabaráttu hinsegin fólks.Reykjavíkurmaraþon Fer fram 18. ágúst í ár og ekki úr vegi að byrja að æfa. Hægt er að velja á milli fimm vegalengdir sem henta fyrir ýmsa aldurshópa og fjölbreytt getustig.Menningarnótt Fer fram 18. ágúst en um er að ræða borgarhátíð sem er haldin árleg í Reykjavík fyrsta laugardag eftir afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst. Í ár er sá laugardagur á afmælisdeginum sjálfum. Reiknað er með að opna Vaðlaheiðargöng í haust. vísir/jói k. SeptemberVaðlaheiðargöng Vonir standa til að opna Vaðlaheiðargöng í haust.Dettifossvegur vestri – Súlnalækur Nýbygging. Verkið felst í lagningu burðarlags og klæðingar á 7,72 kílómetra kafla, nýbyggingu vegar með klæðingu á 2,7 kílómetra kafla og nýbyggingu vegar upp að burðarlagi á 3,4 kílómetra kafla. Heildarlengd útboðskaflans er 13,82 kílómetrar. Verklok áætluð í september.Hringvegur um Berufjarðarbotn Gerð 4,9 kílómetra langs vegar um Berufjarðarbotn ásamt smíði 50 metra langrar brúar og gerð 1,7 kílómetra langra heimreiða að bæjunum Berufirði og Hvannabrekku. Annars vegar er um að ræða nýbyggingu á 2,9 kílómetra kafla Hringvegar norðan Berufjarðar og er um 1 kílómetri af þeim hluta yfir sjávarvog. Hins vegar er endurgerð Hringvegar á 2,0 kílómetra löngum kafla sunnan Berufjarðar. Verklok áætluð í september.Ný brú yfir Eldvatn Nýbygging Skaftártunguvegar um Eldvatn í Skaftárhreppi í Vestur-Skaftafellssýslu ásamt byggingu nýrrar brúar yfir Eldvatn. Nýr vegkafli er 920 metrar að lengd frá Hringvegi, um Eldvatn og tengis núverandi Skaftártunguvegi við Eystri-Ása. Ný brú á Eldvatn er 80 metra löng stálbogabrú. Verkið var boðið út síðastliðið haust en öllum tilboðum hafnað. Það verður boðið aftur í í vor og verklok áætluð í haust. Reiknað er með að Hafnartorg verði opnað við hátíðlega athöfn í október. vísir/ernir OktóberSkarðsvegur í SkarðsdalNýbygging á kafla sem byrjar skammt neðan við núverandi skíðaskála og nær að fyrirhuguðum skíðaskála sunnan Leyningsár. Lengd útboðskaflans er um 1,22 km auk 5.300 m2 bílastæðis við efri enda kaflans. Verklok áætluð í október.HafnartorgVonir standa til að Hafnartorgið í miðborg Reykjavíkur verði opnað við hátíðlega athöfn í október næstkomandi. Mun byggingin innihalda íbúðir, verslanir, kaffihús, veitingastaði og nútímalegar skrifstofur.Fyrsti dagur vetrar Fyrsti dagur vetrar er 27. október í ár en um er að ræða laugardagurinn að lokinn 26. viku sumars og fyrsti dagur fyrsta vetrarmánaðarins, Gormánaðar.NóvemberIceland Airwaves Tónlistarhátíðin hefst 7. nóvember í ár. 1. desember fagna Íslendingar 100 ára fullveldisafmæli. Vísir/GVA DesemberVestfjarðavegur um GufudalssveitUnnið er að undirbúningi verksins. Beðið er eftir aðalskipulagsbreytingu sem unnin er á vegum sveitarfélagsins. Vonast er til að framkvæmdir geti hafist fyrir lok árs.100 ára fullveldi Laugardagurinn 1. desember eru 100 frá því Íslendingar fengu fullveldi frá Dönum.Jólin Jólin í ár verða launþegum í vil, ef svo má að orði komast, því aðfangadag ber upp á mánudegi.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Innlent Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Erlent Fleiri fréttir Gæti orðið flókið að sinna Tvíhöfða sem ráðherra Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Sjá meira