Fótbolti

Coutinho opnaði markareikninginn eftir undirbúning Suarez

Anton Ingi Leifsson skrifar
Brassinn fagnar í kvöld með Messi í bakgrunn.
Brassinn fagnar í kvöld með Messi í bakgrunn. vísir/getty
Phillipe Coutinho opnaði markareikning sinn fyrir Barcelona þegar liðið vann 2-0 sigur á Valencia í síðari leik liðanna í spænska konungsbikarnum.

Markið skoraði Coutinho eftir undirbúning Luis Suarez, en kapparnir léku saman á sínum tíma hjá Liverpool. Síðara mark Börsunga skoraði Ivan Rakitic.

Lokatölur því 2-0, en Börsungar unnu fyrri leik liðanna með einu marki gegn engu og eru því komnir áfram. Í úrslitunum mæta þeir Sevilla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×