Sjáðu alla dramatíkina í leik Liverpool og Tottenham frá öðru sjónarhorni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2018 08:30 Mohamed Salah skorar markið frábæra sem flestir héldu að yrði sigurmarkið. Vísir/Getty
Það gekk mikið á í leik Liverpool og Tottenham í ensku úrvalsddeildinni sem fór fram á Anfield á sunnudaginn og nú býður Liverpool upp á það að fylgjast með gangi mála í þessum magnaða leik frá öðru sjónvarhorni. Liverpool setti myndband inn á Youtube-síðu félagsins undir merkjunum Inside Anfield en þetta hefur verið í boði frá mörgum heimaleikjum liðsins á þessari leiktíð. Leikurinn var frábær skemmtun og dramatíkin í lokin sprengdi næstum því alla mæla. Stuðningsmenn Liverpool fór á örskotsstundu úr því að fagna frábæru marki Mo Salah í það að missa sig úr reiði yfir dómurum leiksins. Liverpool komst tvisvar yfir í leiknum en fékk síðan dæmdar á sig tvær vítaspyrnur á lokakaflanum. Seinni vítaspyrnan kom í uppbótartíma og úr henni tryggði Harry Kane Tottenham jafntefli. Myndbandið er tekið úr göngunum á Anfield sem og úr myndavélum á sérstökum stöðum á vellinum. Í þessu myndbandi heyrast hljóðin frá áhorfendunum mjög vel og maður fær því alla stemmninguna beint í æð. Liverpool og Tottenham eru að keppa um sæti í Meistaradeildinni á næsta tímabili og þessi leikur því gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. 2-2 jafnteflið hjálpaði því ekki mikið en stig er samt stig. Liverpool er í 3. sæti með 51 stig og Tottanham er í 5. sæti með 49 stig. Chelsea hefur tapað tveimur leikjum í röð en meistararnir eru í 4. sæti með 50 stig.
Enski boltinn Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Fleiri fréttir Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira