Logi: Frábært að labba frá þessu svona Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 25. febrúar 2018 19:06 Logi Gunnarsson var heiðraður fyrir leik vísir/bára
Logi Gunnarsson kvaddi íslenska landsliðið í körfubolta í kvöld þegar hann lék sinn síðasta leik fyrir liðið. Kveðjuleikurinn var magnaður og fór íslenska liðið með eins stigs sigur á Tékklandi eftir mikla dramatík í lok leiks. „Þetta gat ekki endað betur,“ sagði Logi eftir leikinn, klyfjaður blómvendi sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, færði honum fyrir leikinn. „Ég sagði í viðtölum fyrir leikinn að ég væri að vonast eftir tveimur sigrum á móti þessum sterku þjóðum. Maður vissi að það væri langsótt því þetta eru hörku körfuboltaþjóðir, en að taka þessa tvo leiki er fullkominn endir á mínum ferli.“ Þrátt fyrir magnaðan leik var Logi ekki farinn að endurhugsa ákvörðun sína. „Mér finnst ég vera búinn að vera nógu lengi í þessu. Ég finn fyrir að ég er ánægður með ferilinn minn og það sem ég hef gefið íslenskum körfubolta.“ „Vonandi er fólk ánægt með mig, komandi kynslóð er að koma inn með frábærum körfuboltamönnum og ég hef engar áhyggjur með framhaldið. Við erum að skila góðu búi og það eru fleiri að fara að hætta í næstu leikjum fljótlega. Ég er mjög sáttur við þessa ákvörðun og við erum ekki í vanda með framtíðina.“ „Við gerðum leikinn óþarflega spennandi fannst mér. En þegar þú ert að spila á móti stórþjóðum eins og Tékkum þá má ekkert slaka á. Sem betur fer héldum við haus og kláruðum eins stigs sigur.“ „Það er frábært að labba frá þessu svona.“ Sigurinn opnaði stöðuna í riðlinum talsvert, Ísland heldur öðru sætinu og er nú aðeins stigi á eftir Tékkum. „Okkar stefna er að fara upp úr þessum riðli og halda okkur á meðal bestu þjóðum Evrópu. Þá verðum við áfram A þjóð og við viljum halda þessu gangandi. Við erum búnir að fara á tvö stórmót í röð, fámennasta þjóðin í sögu körfuboltans, og við viljum halda því gangandi,“ sagði Logi Gunnarsson.
Körfubolti Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira