Fótbolti

Rúnar Már og félagar unnu mikilvægan sigur í Sviss

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Rúnar Már í leik með íslenska landsliðinu
Rúnar Már í leik með íslenska landsliðinu vísir\vilhelm
Rúnar Már Sigurjónsson var í sigurliði Grasshopper gegn Lugano í svissnesku úrvalsdeildinni. Þá var Guðlaugur Victor Pálsson í byrjunarliði FC Zurich er liðið gerði jafntefli við Thun. Báðir spiluðu allan leikinn.



Grasshopper lenti undir gegn Lugano strax á 6. mínútu leiksins en þeir voru búnir að jafna leikinn aðeins fimm mínútum síðar.



Grasshopper komst svo yfir í leiknum eftir vítaspyrnu á 21. mínútu og reyndist það vera lokatölur, 2-1.



Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Grasshopper en með sigrinum komst liðið upp úr botnsætinu. Mikil spenna er á botninum og munar aðeins einu stigi á 7. sæti og 10. sæti.



Guðlaugur Victor lék allan leikinn er lið hans FC Zurich gerði jafntefli við Thun í toppbaráttuslag. Bæði lið eru í Evrópubaráttu en langt er í toppsætið en þar sitja Young Boys.



Zurich er í öðru sæti með 16 stig, jafnmörg og Basel en Thun er í fjórða sæti, stigi á eftir Guðlaugi Victori og félögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×