Setti landsliðsskóna á hilluna til að spila með Wolves Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. ágúst 2018 18:00 Kilman (t.v.) í leik með varaliði Wolves Vísir/Getty
Max Kilman gekk til liðs við nýliða Wolves í ensku úrvalsdeildinni á lokadegi félagsskiptagluggans fyrr í mánuðinum. Hann gæti þurft að setja landsliðsferil sinn á hilluna til þess að spila með Wolves. Kilman er 21 árs og spilaði fótbolta með utandeildarliði Maidenhead United. Hann upplifði draum hvers ungs fótboltamanns þegar úrvalsdeildarlið Wolves ákvað að fá hann til sín í sumar. Hann gæti þó þurft að setja annan draum á hilluna og hætta að spila með enska landsliðinu í futsal. Kilman á 25 landsleiki að baki með enska landsliðinu í futsal en hann byrjaði að spila futsal til þess að verða betri í fótbolta. „Ég efast um að ég hafi tíma fyrir futsal núna því ég þarf að æfa á hverjum degi með Wolves,“ sagði Kilman í viðtali við breska blaðið Guardian. „Ég vil reyna að skipuleggja mig svo ég geti haldið áfram að spila fyrir England en það er erfitt og ég er ekki viss um að það takist.“ „Mér finnst það mjög leiðinlegt en þetta er eitthvað sem ég verð að gera til þess að verða atvinnumaður í fótbolta.“ Kilman var ekki í leikmannahópi Wolves í fyrstu tveimur leikjunum í úrvalsdeildinni. Wolves mætir Englandsmeisturum Manchester City í hádegisleiknum á laugardaginn í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira