Southampton vann úrvalsdeildarslaginn Dagur Lárusson skrifar 27. janúar 2018 17:00 Liðsmenn Southampton fagna marki Stephens vísir/getty Southampton bar sigurorð á Watford í eina úrvalsdeildarslagnum í enska bikarnum í dag og er því komið áfram í fimmtu umferð bikarsins. Southampton byrjaði leikinn mjög vel og komst yfir strax á 4. mínútu leiksins með marki frá Jack Stephens og var staðan 1-0 í hálfleik. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í seinni hálfleik þá náði Watford ekki að jafna leikinn og er því úr keppni í bikarnum og er ennþá stjóralaust eftir að félagið rak Marco Silva síðustu helgi. Ein óvæntustu úrslit dagsins áttu sér stað í viðureign Wigan og West Ham. Wigan, sem eru í þriðju efstu deild Englands, byrjaði leikinn með miklum krafti og skoraði Will Griggs eftir aðeins 7. mínútur og kom sínum mönnum yfir. Staðan var 1-0 í hálfleik og bjuggust eflaust margir við því að West Ham myndi fara í næsta gír í seinni hálfleiknum en svo var ekki. Þegar aðeins fjórar mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum þá fékk Arthur Masuaku að líta beint rautt spjald og því West Ham í miklu veseni. Eftir þetta héldu liðsmenn Wigan áfram að sækja og náðu þeir að skora sitt annað mark á 62. mínútu. Þá var brotið á leikmanni Wigan og dæmd vítaspyrna sem Will Griggs tók og skoraði hann sitt annað mark. Lokatölur leiksins reyndust 2-0 og því fer Wigan áfram í bikarnum á meðan West Ham situr eftir með sárt ennið.Úrslit dagsins: Huddersfield Town 1-1 Birmingham City Hull City 2-1 Nottingham Forest Middlesbrough 0-1 Brighton & Hove Albion Millwall 2-2 Rochdale Milton Keynes Dons 0-1 Coventry City Notts County 1-1 Swansea City Sheffield United 1-0 Preston North End Southampton 1-0 Watford Wigan 2-0 West Ham Enski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn