Einangrun karla með krabbamein Dr. Ásgeir R. Helgason skrifar 5. mars 2018 07:00 Einn af hverjum 5 karlmönnum yfir 50 ára aldri er tilfinningalega einangraður og yfirgnæfandi meirihluti hinna, sem hafa einhvern til að deila erfiðum tilfinningum með, deilir þeim aðeins með maka sínum. Séu karlmenn ekki í föstu sambandi eru 70% þeirra algerlega tilfinningalega einangraðir. Rannsóknir sýna að þessar tölur gilda um karlmenn almennt, einnig þá sem glíma við krabbamein. Karlar með krabbamein nýta síður en konur þann sálfélagslega stuðning sem býðst á sjúkrastofnunum. Þeir treysta aðallega á þann stuðning sem þeir fá frá maka sínum þegar þeir standa frammi fyrir erfiðleikum eða eru undir álagi. Það getur valdið viðbótarálagi hjá makanum, sem þarf bæði að styðja karlinn og glíma við eigin áhyggjur. Á síðari árum hafa rannsóknir sýnt að námskeið virðast höfða betur til karlmanna en tilboð um stuðning. Framsetning skiptir máli. Klínísk reynsla sýnir hins vegar að karlmenn sem taka þátt í slíkum námskeiðum taka sálfélagslegum stuðningi vel. Þá skiptir meginmáli að fagaðilinn hafi lag á því að bjóða upp á slíkt samtal, án þess að þröngva því upp á viðkomandi eða ganga of nærri honum. Eitt af verkefnum Mottumarsátaksins í ár er að þróa karlagátt, vefsíðuna „Karlaklefann“ sem mætir þörfum karla á karllægan hátt. Þar verður meðal annars aðgangur að fræðsluefni fyrir karla, greiningarpróf varðandi ákvörðunartöku um skimun og meðferð við krabbameini í blöðruhálskirtli og vettvangur til að kynna starfsemi hópa. Þar verður einnig hægt að bóka tíma á námskeið og í ráðgjöf hjá fagfólki Krabbameinsfélagsins auk upplýsinga um einkenni, meðferðir og afleiðingar þeirra, um réttindamál og aðferðir sem reynst hafa vel. Með því að kaupa Mottumarssokka til styrktar átakinu sýnir þú körlum stuðning í verki og stuðlar að því að Karlaklefinn verði opnaður sem fyrst og veiti karlmönnum upplýsingar og fræðslu um krabbamein sem sérsniðin er að þeirra þörfum.Höfundur er fræðslufulltrúi Krabbameinsfélagsins Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Dauði vefsíðunnar eins og við þekkjum hana Kristján Már Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Einn af hverjum 5 karlmönnum yfir 50 ára aldri er tilfinningalega einangraður og yfirgnæfandi meirihluti hinna, sem hafa einhvern til að deila erfiðum tilfinningum með, deilir þeim aðeins með maka sínum. Séu karlmenn ekki í föstu sambandi eru 70% þeirra algerlega tilfinningalega einangraðir. Rannsóknir sýna að þessar tölur gilda um karlmenn almennt, einnig þá sem glíma við krabbamein. Karlar með krabbamein nýta síður en konur þann sálfélagslega stuðning sem býðst á sjúkrastofnunum. Þeir treysta aðallega á þann stuðning sem þeir fá frá maka sínum þegar þeir standa frammi fyrir erfiðleikum eða eru undir álagi. Það getur valdið viðbótarálagi hjá makanum, sem þarf bæði að styðja karlinn og glíma við eigin áhyggjur. Á síðari árum hafa rannsóknir sýnt að námskeið virðast höfða betur til karlmanna en tilboð um stuðning. Framsetning skiptir máli. Klínísk reynsla sýnir hins vegar að karlmenn sem taka þátt í slíkum námskeiðum taka sálfélagslegum stuðningi vel. Þá skiptir meginmáli að fagaðilinn hafi lag á því að bjóða upp á slíkt samtal, án þess að þröngva því upp á viðkomandi eða ganga of nærri honum. Eitt af verkefnum Mottumarsátaksins í ár er að þróa karlagátt, vefsíðuna „Karlaklefann“ sem mætir þörfum karla á karllægan hátt. Þar verður meðal annars aðgangur að fræðsluefni fyrir karla, greiningarpróf varðandi ákvörðunartöku um skimun og meðferð við krabbameini í blöðruhálskirtli og vettvangur til að kynna starfsemi hópa. Þar verður einnig hægt að bóka tíma á námskeið og í ráðgjöf hjá fagfólki Krabbameinsfélagsins auk upplýsinga um einkenni, meðferðir og afleiðingar þeirra, um réttindamál og aðferðir sem reynst hafa vel. Með því að kaupa Mottumarssokka til styrktar átakinu sýnir þú körlum stuðning í verki og stuðlar að því að Karlaklefinn verði opnaður sem fyrst og veiti karlmönnum upplýsingar og fræðslu um krabbamein sem sérsniðin er að þeirra þörfum.Höfundur er fræðslufulltrúi Krabbameinsfélagsins
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar