Enski boltinn

Jóhann Berg „leikmaður sem á að fylgjast með“

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Jóhann Berg er hér í baráttu við Luke Shaw á Old Trafford.
Jóhann Berg er hér í baráttu við Luke Shaw á Old Trafford. vísir/getty
Næstu kaup þín í Fantasyleik ensku úrvalsdeildarinnar eiga að vera Jóhann Berg Guðmundsson samkvæmt njósnara leiksins.

Á heimasíðu ensku úrvalsdeildarinnar er hægt að taka þátt í svokölluðum Fantasy deildum, þar sem spilarar fá ákveðna upphæð og eiga að setja saman lið úr leikmönnum úrvalsdeildarinnar og fá stig eftir því hvernig leikmönnunum gengur í leikjum sínum.

Í hverri viku bendir njósnarinn á nokkra leikmenn sem vert er að fylgjast með og kaupa í lið sitt og í þessari viku er Jóhann Berg Guðmundsson einn af þeim sem verðugt er að fjárfesta í.

Jóhann Berg hefur búið til 14 marktækifæri í síðustu fjórum umferðum, sem er betri árangur en hjá nokkrum öðrum miðjumanni. Þar af eru þrjú stór tækifæri þar sem búist var við því að leikmaðurinn sem fékk færið myndi skora.

Í fyrstu tuttugu umferðunum bjó Jóhann til marktækifæri á 62 mínútna fresti. Nú er sú tala hins vegar komin niður í marktækifæri á 25 mínútna fresti.

Burnley mætir Newcastle í næstu umferð. Newcastle hefur fengið á sig 18 skot úr föstu leikatriði í síðustu fjórum umferðum. Jóhann Berg tekur orðið allar hornspyrnur Burnley eftir meiðsli Robbie Brady og nærri helmingur spyrna hans síðustu umferðir hefur skilað af sér skoti á markið. Góður árangur Burnley úr hornspyrnum og slakur varnarleikur Newcastle í föstum leikatriðum er líkleg uppskrift að góðum árangri.

Þá spáir njósnarinn góðum árangri hjá Jóhanni Berg í næstu umferðum því leikjaplan Burnley er nokkuð vænlegt, að undanskildri heimsókn Manchester City. Næstu fimm umferðir Burnley eru gegn Newcastle, City, Swansea, Southampton og Everton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×