Nýtti langþráð tækifæri vel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. janúar 2018 07:00 Michy Batshuayi er kominn með 10 mörk á tímabilinu. vísir/getty
Michy Batshuayi nýtti tækifæri sitt í byrjunarliði Chelsea vel þegar liðið vann 3-0 sigur á Newcastle United í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í gær. Batshuayi skoraði fyrstu tvö mörk Chelsea í leiknum og var afar ógnandi í framlínu Englandsmeistaranna. Batshuayi hefur fá tækifæri fengið í vetur og Antonio Conte virðist ekki hafa mikla trú á Belganum sem kom frá Marseille fyrir síðasta tímabil. Alls konar framherjar hafa verið orðaðir við Chelsea í þessum mánuði og Conte hefur sagt að takist honum að landa einum slíkum fái Batshuayi að fara á láni frá félaginu. Batshuayi hefur skorað 10 mörk á tímabilinu. Þrjú þeirra hafa komið í bikarkeppninni en hann skoraði einnig í endurtekna leiknum gegn Norwich City í 3. umferðinni. Belginn hefur alls skorað fimm bikarmörk fyrir Chelsea sem hefur komist í 16-liða úrslit bikarkeppninnar 18 sinnum á síðustu 20 árum. Chelsea komst í úrslitaleikinn í fyrra en tapaði þar fyrir Arsenal.Stóru málin eftir helgina í enska boltanumStærstu úrslitin West Brom gerði góða ferð á Anfield og sló Liverpool úr leik í 4. umferð ensku bikarkeppninnar. Jay Rodriguez skoraði tvívegis í 2-3 sigri West Brom sem hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Útlitið hjá liðinu er því aðeins bjartara en fyrir nokkrum vikum.Hvað kom á óvart? D-deildarlið Newport County var átta mínútum frá því að vinna Tottenham á heimavelli sínum, Rodney Parade. Padraig Amond kom Newport í 1-0 á 38. mínútu og þannig var staðan allt þar til Harry Kane jafnaði metin á 82. mínútu og tryggði Tottenham annan leik á Wembley.Mestu vonbrigðin West Ham tapaði 2-0 fyrir Wigan Athletic, toppliði C-deildarinnar. Költhetjan Will Grigg skoraði bæði mörk Wigan sem varð bikarmeistari fyrir fimm árum. Arthur Masuaku, leikmaður West Ham, fékk rauða spjaldið fyrir að hrækja á andstæðing. David Moyes, stjóri West Ham, gagnrýndi Masuaku eftir leikinn.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Í beinni: KR - Fram | Rúnar snýr aftur á Meistaravelli Íslenski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Leik lokið: Vestri - HK 2-1 | Vestri upp úr fallsæti á kostnað HK Íslenski boltinn Fleiri fréttir Delap bjargaði stigi fyrir nýliðina Í beinni: Man. Utd. - Tottenham | Tvö lið í snúinni stöðu Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Sjá meira
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn