Enski boltinn

Zlatan í viðræðum við LA Galaxy

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Zlatan á líklega eftir að gera það gott í LA ef hann fer þangað.
Zlatan á líklega eftir að gera það gott í LA ef hann fer þangað. vísir/getty
Hollywood bíður eftir Zlatan Ibrahimovic og samkvæmt heimildum ESPN þá eru viðræður hans og LA Galaxy langt komnar.

Zlatan er orðinn 36 ára gamall og verður væntanlega ekki lengur en út leiktíðina hjá Man. Utd.

LA Galaxy hefur lengi haft augastað á Zlatan og hann var orðaður við félagið áður en hann meiddist illa á hné á síðustu leikíð.

Ferill Zlatan hefur verið glæsilegur og hann á lítið annað eftir en að leggja Bandaríkin að fótum sér. Hann hefur spilað með Malmö, Ajax, Juventus, Inter, Barcelona, AC Milan og PSG á ferlinum. Hann skoraði svo 62 mörk í 116 landsleikjum fyrir Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×