Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Hundrað og tuttugu manns hafa fengið skilaboð síðustu tvo sólarhringa um að vera með með stökkbreytingu í brakkageninu. Erfðafræðingur á Landspítala segir fjölda manns hafa hringt og pantað tíma vegna jákvæðrar niðurstöðu og búist er við miklu álagi á brjóstamiðstöð Landspítalans. Fjallað verður um þetta í fréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Við hittum líka stórleikarann Bill Murray og verðum í beinni útsendingu frá Víkingahátíðinni í Hafnarfirði og frá Moskvu, en þangað mætti íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu í dag, þegar aðeins tveir dagar eru í fyrsta leik liðsins á Heimsmeistaramótinu.

Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar 2 í opinni dagskrá klukkan 18:30.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×