De Gea vill meira en enska bikarinn: „Stuðningsmennirnir eiga skilið meira“ Anton Ingi Leifsson skrifar 2. maí 2018 19:30 De Gea hefur verið algjörlega magnaður á leiktíðinni. vísir/afp
David De Gea, markvörður Manchester United, segir að vinna bara enska bikarinn sé ekki nóg fyrir eins stórt félag og Manchester United er. Liðið þurfi að stefna að stærri og betri hlutum. Í gær var De Gea valinn leikmaður ársins hjá United en þetta er fjórða árið sem markvörðurinn er valinn leikmaður ársins. Liðið er í öðru sætinu, langt á eftir meisturum Man. City og De Gea vill meira. „Þetta hefur ekki verið nógu gott tímabil. Til þess að vera hreinskilinn höfum við verið að berjast við að halda öðru sætinu og vonandi náum við því en við höfum ekki náð okkar aðal markmiði sem var að vinna deildina,” sagði De Gea. „Það er ástæðan fyrir því að við erum hér og það er það sem leikmennirnir vilja. Einnig viljum við gera okkur gildandi í Meistaradeildinni en við höfum ekki náð því markmiði.” United mætir Chelsea í úrslitaleik enska bikarsins um miðjan mánuðinn. Spænski markvörðurinn vill auðvitað vinna bikarinn en segir að liðið þurfi að setja markið enn hærra. „Auðvitað er enski bikarinn mikilvægur og góður bikar til að vinna og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að ná því en það er ekki nóg. Við erum Manchester United og við þurfum að stefna að stærri og betri hlutum.” „Við þurfum að berjast til að vera með á næsta tímabili. Þetta er ekki bara Man. City sem munu vera að berjast á næstu leiktíð heldur verða þetta fimm til sex lið. Það kostar vinnu og við þurfum að vera í þessum pakka.” „Við erum hérna til þess að reyna vinna bikara. Stuðningsmennirnir og fólkið í félaginu á skilið eitthvað betra og það er það sem við þurfum að gera; berjast til að vinna bikara,” sagði markvörðurinn magnaði að lokum.
Fótbolti Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira