Harry Kane sárnaði meðferðin hjá nettröllunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2018 08:00 Harry Kane. Vísir/Getty
Tottenham maðurinn Harry Kane hefur unnið gullskó ensku úrvalsdeildarinnar tvö tímabil í röð en nú stendur honum mikil ógn af Egyptanum Mohammad Salah hjá Liverpool. Kane fékk markanefndina til að hjálpa sér í baráttunni og það sló ekki alveg í gegn á stóra internetinu. Harry Kane vildi fá mark skráð á sig í leiknum og á móti Stoke City um síðustu helgi og Tottenham áfrýjaði fyrstu ákvörðun markanefndinnar sem tók málið aftur fyrir. Kane fékk markið skráð á sig á endanum. Það var ekki hægt að sjá greinilega snertingu á sjónvarpsupptökunum en Harry Kane sagðist hafa komið við boltann.Mauricio Pochettino says Harry Kane has been hurt by reaction to his claims for Stoke goal. @SamWallaceTelhttps://t.co/vdqb674ChM — Telegraph Football (@TeleFootball) April 12, 2018 Kane sannfærði markanefndina og nú munar aðeins fjórum mörkum á honum og Mohammad Salah hjá Liverpool í baráttunni um gullskó ensku úrvalsdeildarinnar. Kane vann hinsvegar ekki netið með þessu máli og hafa nettröllin heldur betur tekið enska landsliðsframherjann í gegn á síðustu sólarhringum. Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Tottenham, tjáði sig um málið og meðferðina sem Harry Kane fékk á samfélagsmiðlunum. „Auðvitað hélt hann að þetta yrði aldrei að svona stóru máli. Hann var sannfærður um að hann hafi komið við boltann. Það er eðlilegt að hann hafi því verið vonsvikinn með að fá markið ekki skráð. Stuðningsmenn Tottenham munu standa með Harry Kane en stuðningmenn hinna liðanna vilja örugglega drepa hann. Fólk hefur sínar skoðanir og það er bara eðlilegt,“ sagði Mauricio Pochettino. „Hann er vonsvikinn af því að hann ætlaði aldrei að búa til svona mál. Stundum verður lítið atriði alltaf stærra og stærra og það ræður enginn við það. Það gerðist hér og hann mun læra af þessu,“ sagði Pochettino sem segir að Harry Kane hafi vissulega sárnað meðferðin sem hann fékk á netinu. „Harry er mjög heiðarleg persóna og hann er ekki að fara ljúga um að hafa komið við boltann. Við erum búin að búa til stórmál úr því sem á ekki að vera neitt mál,“ sagði Pochettino. Harry Kane tók mark af liðsfélaga sínum Christian Eriksen en Mauricio Pochettino segir að það sé allt í góðu á milli Kane og danska landsliðsmannsins. Pochettino gerði líka lítið úr þeim skoðunum að þetta myndi bara gera Mohammad Salah enn einbeittari í því að vinna gullskóinn og myndi því að endanum hjálpa Egyptanum. „Ég trúi því ekki að Salah þurfi svona mál til að fá innblástur. Ekki láta mig fara að hlæja,“ sagði Pochettino. Staðan er nú 29-25 í baráttu Mohammad Salah og Harry Kane. Tottenham mætir Manchester City um helgina.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira