Lífið

Simon Cowell missti kjálkann í gólfið þegar þessi 32 ára Ástrali byrjaði að syngja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gingzilla sló í gegn.
Gingzilla sló í gegn.
Hinn 32 ára Gingzilla mætti í áheyrnarprufu í bresku útgáfuna af X-Factor á dögunum og setti heldur betur sinn svip á þáttinn.

Um er að ræða vel skeggjaðan karlmann með ótrúlegt raddsvið. Gingzilla tók lagið Seven Nation Army með The White Stripe  og gerði það heldur betur að sínu.

Útkoman var algjörlega ótrúleg og missti Simon Cowell, dómarinn þekkti, hreinlega kjálkann í gólfið þegar Gingzilla breytti skyndilega um raddsvið í miðjum flutningi en hér að neðan má sjá atriðið.

X-Factor er á dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum klukkan 19:25.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×