Enski boltinn

Nýr leikvangur Tottenham ekki klár á þessu ári

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það verður beðið lengur eftir þessum.
Það verður beðið lengur eftir þessum. vísir/getty
Nýji leikvangur Tottenham verður ekki tilbúinn á þessu ári en þetta staðfesti félagið í dag. Mikil vonbrigði fyrir félagið enda löng bið.

Tottenham vonaðist eftir að geta byrjað að spila á nýjum leikvangi fimmtánda september en vöntun á öryggisráðstöfunum hefur tafið það.

Fyrr í þessum mánuði sagði Mauricio Pochettino, stjóri Tottenhamm, að hann vonaðist eftir að félagið myndi byrja að spila á vellinum á þessu ári og sagði að það myndi líklega gerast.

Nú hefur félagið staðfest í tilkynningu að völlurinn verði ekki klár á þessu ári og stjórnarformaðurinn Daniel Levy hefur beðið stuðningsmenn afsökunar.

Ekki hefur verið gefið út ný dagsetning hvenær Tottenham spilar sinn fyrsta leik en Levy segir að það verði fljótlega á nýju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×