Fótbolti

Neymar missir líklega af leiknum gegn Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það er þungt yfir Neymar þessa dagana.
Það er þungt yfir Neymar þessa dagana. vísir/getty
Thomas Tuchel, þjálfari PSG, segir að Brasilíumaðurinn Neymar muni líklega ekki vera orðinn heill heilsu áður en PSG og Man. Utd mætast í Meistaradeildinni.

Neymar braut bein í ristinni síðasta miðvikudag í bikarleik gegn Strasbourg. Það geta verið erfið og langvinn meiðsli.

Fyrri leikur liðanna fer fram á Old Trafford þann 12. febrúar og Tuchel er ekki endilega að reikna með Neymar í það ferðalag. Neymar meiddist einnig eftir áramót í fyrra og rétt náði sér þá góðum fyrir HM.

Án Neymar valtaði PSG yfir Rennes um helgina, 4-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×