Líklegt að það kvikni aftur á Mo Salah á móti uppáhaldsmótherjanum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2019 14:30 Mohamed Salah fagnar marki á móti Watford. Getty/Richard Heathcote
Liverpool maðurinn Mohamed Salah þarf svolítið að sanna sig aftur í kvöld þegar Liverpool tekur á móti Watford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir mjög dapra frammistöðu Egyptans á móti Manchester United um síðustu helgi. Mohamed Salah var nánast ósýnilegur í United-leiknum og Jürgen Klopp ákvað á endanum að taka markahæsta mann ensku úrvalsdeildarinnar af velli þótt staðan væri markalaust. Mohamed Salah hefur skorað 17 mörk í 27 deildarleikjum á þessu tímabili en aðeins eitt þeirra hefur komið í síðustu fjórum leikjum. Hann er í lægð og þarf að finna taktinn á ný. Mótherji kvöldsins er aftur á móti uppáhaldsmótherji Mohamed Salah eins og sjá má á þessari samantekt fésbókarsíðu Liverpool hér fyrir neðan. Mohamed Salah hefur nefnilega skorað 6 mörk í 3 leikjum á móti Watford síðan að hann gekk til liðs við Liverpool fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan. Hann hefur líka lagt upp önnur tvö mörk til viðbótar í þessum þremur leikjum sínum á móti Watford. Átta mörk í þremur leikjum er engin smá tölfræði og það er því von á einhverju góðu í beinni á Stöð 2 Sport á eftir. Salah skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Roberto Firmino í 3-3 jafntefli Liverpool og Watford í ágúst 2017, hann skoraði þrennu og lagði upp annað mark fyrir Firmino í 5-0 sigri Liverpool á Watford á Anfield í mars í fyrra og þá skoraði hann fyrsta markið í 3-0 sigri á Watford í fyrri leik liðanna á þessari leiktíð. Salah hefur líka skorað 6 mörk á móti Bournemouth en það í fjórum leikjum. Egyptinn snjalli hefur síðan skorað 4 mörk á móti Arsenal, West Ham og Southampton. Útsending Stöð 2 Sport frá leik Liverpool og Watford hefst klukkan 19.50 í kvöld. Leikur Crystal Palace og Manchester United verður sýndur á sama tíma á Stöð 2 Sport 2 og leikur Chelsea og Tottenham er í beinni á Stöð 2 Sport 3. Allir leikirnir hefjast klukkan 20.00.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira