Man. City getur orðið þrefaldur meistari 18. maí 2019 10:00
Fótbolti Úrslitaleikur ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu karla fer fram á Wembley klukkan 16.00 í dag. Þar leiða saman hesta sína Manchester City sem hefur nú þegar tryggt sér enska meistaratitilinn og enska deildabikarinn á leiktíðinni og Watford sem hafnaði í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir gott keppnistímabil. Fyrir Manchester City er hvatningin að vinna þennan bikar að fá rós í hnappagatið og verða bikarmeistari í sjötta skipti í sögu félagsins og í fyrsta skipti síðan árið 2011. Fyrir Watford er hvatningin auk þess að verða bikarmeistari í fyrsta skipti í sögunni einnig fjárhagslegs eðlis þar sem í húfi fyrir liðið er sæti í Evrópudeildinni á næstu leiktíð með sigri í þessum leik. Watford hefur einu sinni farið alla leið í úrslitaleik bikarkeppninnar en það var vorið 1984 þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Everton þar sem Graeme Marshall Sharp og Andy Gray skoruðu mörk Everton í 2-0 sigri liðsins. Síðan þá hefur liðið ekki keppt um verðlaun og flakkað á milli deilda í ensku deildakeppninni. Pep Guardiola getur orðið bikarmeistari í fimmta skipti á knattspyrnustjóraferli sínum en hann varð tvisvar sinnum bikarmeistari sem knattspyrnustjóri Barcelona og sömuleiðis tvívegis þegar hann stýrði Bayern München. Þá getur hann bætt fimmta titlinum í safnið á meðan hann er við stjórnvölinn hjá Manchester City en liðið varð enskur meistari í annað sinn undir hans stjórn á dögunum og hefur auk þess unnið enska deildabikarinn tvívegis með Pep við stýrið. Flestir telja að Manchester City fari með sigur af hólmi í þessum leik en 38 stig skildu liðin að þegar upp var staðið í ensku úrvalsdeildinni. Það hefur hins vegar margoft sýnt sig að í bikarkeppni getur allt gerst og Davíð getur hæglega lagt Golíat að velli. – hó
Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Fram - Haukar | Særðir gestir í Úlfarsárdal Tíu marka sigur Íslands Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti „Þetta er dýrmætur tími og maður finnur hvað þetta skiptir mann miklu máli“ Gísli Gottskálk verðlaunaður með nýjum samningi Efast um dugnað og hugarfar Rashford Börsungar bannaðir í Belgrad vegna nasistafána Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Tímabilið búið hjá Rodri Unga hjólreiðakonan látin Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Hermann hættur með ÍBV Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Glódís mætir Arsenal, Juventus og Sædísi Segir að Xavi hafi látið Barcelona spila eins og Eibar Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Sjá meira