Gylfi ofarlega á mörgum listum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2019 09:30 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar einu af þrettán mörkum sínum á leiktíðinni. Getty/Clive Brunskill
Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson endaði tímabilið á að leggja upp mark í jafnteflinu á móti Tottenham í lokaumferðin ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Þetta var sjötta stoðsendingin hans á tímabilinu og náði hann því að koma með beinum hætti að nítján mörkum á leiktíðinni. Þetta var merkilegt tímabil fyrir Gylfa þar sem hann bæði bætti markamet Eiðs Smára Guðjohnsen í ensku úrvalsdeildinni sem og að ná að komast í hóp þeirra sem hafa búið til hundrað mörk í bestu deild Evrópu. Gylfi skoraði þrettán mörk á leiktíðinni og varð ásamt Paul Pogba hjá Manchester United, markahæsti miðjumaðurinn í ensku úrvalsdeildinni. Pogba skoraði úr fimm fleirum vítum en okkar maður. Næsti miðjumaðurinn var síðan Luka Milivojevic hjá Crystal Palace en 10 af 12 mörkum hans komu af vítalínunni. Gylfi endaði í tíunda sæti á markalistanum og varð síðan í 21. sæti með sínar sex stoðsendingar. Hann er mun oftar á öðrum sendingalistum og það voru bara tíu leikmenn sem tóku fleiri skot en íslenski miðjumaðurinn á leiktíðinni. Gylfi hefði getað skorað fleiri mörk því hann var duglegur að koma sér í færi. Hann er þannig í 4. sæti yfir þá leikmenn sem klúðruðu flestum dauðafærum á leiktíðinni. Kannski var eitt af vandamálum Everton að koma ekki boltanum oftar á okkar mann miðað við framleiðslu hans. Gylfi endaði nefnilega bara í 94. sæti yfir þá sem komu oftast við boltann í leiktíðinni.Sætin hans Gylfa í tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili(Samkvæmt opinberri tölfræði ensku úrvalsdeildarinnar) 1. sæti yfir markahæstu miðjumenn (13) 10. sæti yfir markahæstu leikmenn (13) 21. sæti yfir stoðsendingar (6) 8. sæti yfir fyrirgjafir (196) 6. sæti yfir stungusendingar (19) 11. sæti yfir tekin skot (86) 8. sæti yfir tekin horn (105) 4. sæti yfir klúðruð dauðafæri (10)
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira