Sjáðu alla dramatíkina í 4-3 sigri Liverpool frá öðru sjónarhorni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. janúar 2019 14:00 Mohamed Salah skorar annað af mörkum sínum í leiknum. Getty/Laurence Griffiths
Liverpool þurfti heldur betur að hafa fyrir hlutunum í 4-3 sigri á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á Anfield á laugardaginn og nú er hægt að sjá hvernig hlutirnir gengu fyrir sig á bak við tjöldin á leikdegi. Liverpool liðið lenti 1-0 undir í leiknum og endaði síðan leikinn manni færri. Fjögur mörk í seinni hálfleiknum sáu hins vegar til þess að Liverpool er áfram með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Sadio Mane skoraði fjórða markið þegar Liverpool var orðið tíu á móti ellefu og það mark sá á endanum til þess að Liverpool liðið fékk öll þessi þrjú dýrmætu stig í baráttunni við Manchester City um Englandsmeistaratitilinn. Inside Anfield hefur nú sett saman myndband frá þessum dramatíska degi þar sem má sjá leikinn frá öðruvísi sjónarhornum eins og fyrir utan leikvanginn og inn í leikmannagöngunum fyrir og eftir leik. Það má sjá myndbandið hér fyrir neðan.Myndbandið hefst á því að myndatökumenn hittu eina af goðsögnum Liverpool úr 1988 meistaraliðinu og það má síðan sjá goðsögnina Kenny Dalglish gagnrýna Jason McAteer fyrir að sparka í Michael Owen í Star Sixes ölduungarmótinu. Svar McAteer: „Ég sparkaði ekki nógu fast í hann.“ Egyptinn Mo Salah skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í leiknum og hann fékk líka gagnrýni á sig fyrir leikaraskap þegar hann reyndi að fiska víti á Mamadou Sakho. Það er því athyglisvert að sjá við hvern hann skipti á treyjum í leikmannagöngunum eftir leikinn. Fögnuður leikmanna Liverpool og hvernig þeir samgleðjast hverjum öðrum fær líka sinn tíma í myndbandinu. Myndavélarnar eru líka mikið á knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp og þar má sjá hversu miklu máli þessi góðu úrslit skiptu hann og liðið.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira