Jürgen Klopp sagði nei við Steven Gerrard Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2019 15:00 Steven Gerrard og Jürgen Klopp. Með þeim er Steve McManaman. Getty/Christopher Lee
Steven Gerrard fær ekki Ryan Kent aftur lánaðan frá Liverpool ef marka má fréttir frá Englandi. Ryan Kent kom á láni til Rangers á síðustu leiktíð og stóð sig svo vel að hann var valinn besti ungi leikmaður skosku úrvalsdeildarinnar. Gerrard vildi fá þennan 22 ára framherja aftur á láni en fékk nei frá Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool samkvæmt frétt hjá Daily Express.Liverpool manager Jurgen Klopp looks set to block Steven Gerrard's attempt to bring Ryan Kent back to Rangers. More football gossip https://t.co/0j00pEA8Y4#LFC#bbcfootballpic.twitter.com/evmyTqwGA0 — BBC Sport (@BBCSport) July 12, 2019 Góð tengsl Steven Gerrard og Liverpool dugðu ekki í þetta skiptið en nú er kominn að stórum tímapunkti á Liverpool-ferli Ryan Kent. Jürgen Klopp vill nefnilega gefa Ryan Kent tækifæri til að vinna sig inn í aðallið Liverpool á þessu undirbúningstímabili. Ryan Kent komst ekki á blað í 6-0 sigri á Tranmere en byrjaði í þriggja manna sóknarlínu með þeim Harry Wilson og Rhian Brewster. Rhian Brewster skoraði tvö og lagði upp eitt en Wilson átti eina stoðsendingu. Ryan Kent er fæddur í nóvember 1996 og verður því 23 ára á þessu ári. Hann spilar vanalega sem vinstri kantmaður og er alinn upp hjá Liverpool. Kent fékk sinn fyrsta atvinnumannasamning hjá Liverpool árið 2015 en hefur síðan farið á láni á hverju tímabili. Hann var lánaður til Coventry City, Barnsley, SC Freiburg og Bristol City áður en kom að láninu til Rangers. Ryan Kent var með 6 mörk og 6 stoðsendingar í 23 leikjum í skosku úrvalsdeildinni með Rangers.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira